Fjölmenni í þakkargjörð á Ásbrú - myndir
Suðurnesjamenn fengu smá nasaþef af þakkargjörðarhátíðinni með þátttöku veitingamanna og verslana. Verslanir Betri bæjar í Reykjanesbæ voru með góða afslætti og veitingastaðirnir Duus, KEF resturant og Menu/Langbest buðu í alvöru kalkúnaveislu með öllu tilheyrandi. Páll Orri Pálsson, ljósmyndari VF kíkti í gamla yfirmannaklúbbinn á Ásbrú þar sem matreiðslumeistarar Menu og Langbest tóku á móti yfir 500 manns á fimmtudaginn í þakkargjörðarveislu.
Veitingamennirnir Ásbjörn Pálsson og Ingólfur Karlsson voru í góðum gír á þakkargjörðardaginn.
Hér eru fleiri myndir af gestum í kalkúnaveislu félaganna á Ásbrú.