Bygg
Bygg

Mannlíf

Fjölmenni á sjómannadagshátíð í Sandgerði
Sunnudagur 6. júní 2004 kl. 22:37

Fjölmenni á sjómannadagshátíð í Sandgerði

Sandgerðingar og nærsveitarmenn fjölmenntu í dag á Sjómannadagshátíðina sem fór fram í blíðskaparveðri á Vitatorgi og við höfnina.

Þar voru afhent heiðursmerki sjómannadagsins auk þess sem látinna sjómanna vr minnst með því að blómsveig var fleytt út á sjó.

Að ræðuhöldum loknum var börnum boðið upp á að bregða á leik  í hoppuköstulum og öðrum leiktækjum áður en Idol-stjarnan Kalli Bjarni mætti á svæðið. Kalli hélt uppi miklu fjöri eins og honum er einum lagið og voru undirtektir áhorfenda góðar.

Eftir að Kalli hafði lokið sínu prógrammi var aftur haldið niður á bryggju þar sem fór fram keppni í koddaslag og gekk mikið á.

Seinni partinn var svo haldið í siglingu með Moby Dick og fleiri bátum út á Hamarssund, en eftir það var slegið upp grillveislu á Vitatorgi þar sem bæjarstjórnin grillaði fyrir gestina og Mummi Hermanns söng nokkur vel valin lög.

Þá lauk hátíðarhöldunum með verðlaunaafhendingu fyrir koddaslag og flekadrátt.

VF-myndir/Þorgils Jónsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn