Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Fjölmenni á opnun Jóns Sæmundar
Laugardagur 1. október 2005 kl. 17:29

Fjölmenni á opnun Jóns Sæmundar

Góð mæting var á opnun sýningar listamannsins Jóns Sæmundar í sýningarrýminu Suðsuðvestur í Reykjanesbæ í dag.

Á sýningunni sem ber yfirskriftina „Ferðalok“ má sjá nokkur athyglisverð verk, þ.á.m. marglitar líkkistur upp við kolsvartan vegg, líkkistu sem stendur úti á miðju gólfi með mynd af listamanninum ofan á lokinu svo fátt eitt sé nefnt.

Jón Sæmundur er betur þekktur undir nafninu Nonni dead og eigandi Nonnabúðar í Reykjavík. Þetta er þriðja einkasýning listamannsins á árinu.

Jón Sæmundur hélt sýninguna „Hvítir Hrafnar“ í Gallerí Sævars Karls í júní síðastliðnum og í ágústmánuði sýndi hann silkiþrykksmálverk á Næsta bar við Ingólfsstræti.

Með Ferðalokum býður Jón Sæmundur áhorfendum að skyggnast inn í hans eigin draumfarir með nýrri innsetningu í Suðsuðvestur.

Suðsuðvestur er opið á fimmtudögum og föstudögum frá 16 – 18 og um helgar frá 14–17.

VF-Myndir/Þorgils

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024