Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Fjölmenni á Dýrunum í Hálsaskógi
Fimmtudagur 12. júlí 2007 kl. 19:36

Fjölmenni á Dýrunum í Hálsaskógi

Lilli Klifurmús, Mikki Refur og fleiri dýr úr Hálsaskógi glöddu gesti í Skrúðgarðinum í Njarðvík í kvöld, en Leikhópurinn Lotta flutti þar hið sígilda leikrit Thorbjörns Egner undir berum himni í blíðviðrinu.

Fjöldi fólks mætti á sýninguna og skemmtu börn og fullorðnir sér jafnvel. Þeim sem misstu af sýningunni er bent á að Dýrin í Hálsaskógi verða einnig í Elliðaárdalnum flesta miðvikudaga í sumar ásamt því að ferðast um allt landið með sýninguna.

VF-mynd/Hilmar Bragi
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024