Fjöldi viðurkenninga afhentur við skólaslit Holtaskóla
Skólaslit Holtaskóla fóru fram þriðjudaginn 9. júní. Yngsta stig var klukkan 9, miðstig kl. 10 og unglingastig kl. 11. Athafnirnar voru uppbyggðar þannig að Eðvarð Þór skólastjóri fór yfir fasta frá liðnu skólaári, síðan tók Helga Hildur aðstoðarskólastjóri við og afhenti viðurkenningar. Þar að auki buðu nemendur upp á tónlistaratriði á hverju stigi.
Líkt og fyrri ár afhenti Sigríður Bílddal Námsráðgjafarósina á unglingastigi. Það var Eiríkur Ingi Ólafsson sem hlaut rósina að þessu sinni fyrir almennar framfarir.
Þegar kom að útskrift 10. bekkinga fluttu umsjónarkennararnir, Valdís Inga Steinarsdóttir og Sigrún Birta Viðarsdóttir, ávarp og Elísa Dögg Símonardóttir flutti ávarp fyrir hönd nemenda.
Helstu viðurkenningar í 10. bekk féllu í hlut eftirfarandi nemenda: Gísli Freyr Njálsson fékk viðurkenningu frá unglingadeild Björgunarsveitar Suðurnesja, Arnar Þór Þrastarson og Daníel James Róbertsson fengu viðurkenningar fyrir ómetanlegt framlag til menningarmála í skólanum, Sandra Dögg Georgsdóttir og Íris Björk Njarðardóttir fengu viðurkenningar fyrir frábæran árangur í skapandi greinum, Sigrún Elísa Eyjólfsdóttir fyrir árangur í dönsku, Sandra Dögg Georgsdóttir fyrir árangur í náttúrufræði, Sigrún Elísa fyrir árangur í samfélagsfræði. Þá fengu Arnór Snær Sigurðsson, Birta Rós Davíðsdóttir og Sandra Dögg viðurkenningar fyrir árangur í stærðfræði, Sigrún Elísa fyrir árangur í íslensku, Íris Björk Njarðardóttir, Sandra Dögg og Steinunn Rúna Ragnarsdóttir fyrir árangur í íslensku á samræmdu könnunarprófi, Einar Guðbrandsson og Guðbjörg Skarphéðinsdóttir fyrir árangur í ensku á samræmdu könnunarprófi, Arnór Snær Sigurðsson fyrir árangur í stærðfræði á samræmdu könnunarprófi.
Íþróttakona Holtaskóla var Þóranna Kika Hodge-Carr og íþróttamaður Holtaskóla Eggert Gunnarsson.
Viðurkenningar fyrir mestu námsframfarir í 10. bekk hlutu þau Eggert Gunnarsson, Daníel James Róbertsson og Kristófer Orri Svansson. Viðurkenningu fyrir hæstu skólaeinkunn í 10. bekk hlaut Sandra Dögg Georgsdóttir.
Víkurfréttir fengu meðfylgjandi myndir sendar frá Holtaskóla.






