Fjöldi glæsikvenna á Bláa lóns kynningu
Sjáið myndir frá kynningunni hér á vf.is
Blue Lagoon kynnti nýlega nýtt þörungakrem, Nourishing Rich Cream í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Fjöldi glæsilegra kvenna kynntu sér nýju vöruna sem er 24 stunda nærandi krem sem hentar vel fyrir íslenskar aðstæður.
Nýja þörungakremið er 24 stunda krem og hentar því bæði sem dag og næturkrem. Ása Brynjólfsdóttir rannsókna- og þróunarstjóri Bláa Lónsins hf .segir að sérstaða Blue Lagoon varannna hafi ávallt legið í rannsóknum á virkum efnum. „Allar okkar vörur byggja á virkum efnum Bláa Lónsins, steinefnum, kísil og þörungum. Rannsóknir á kísil og þörungum Bláa Lónsins hafa leitt í ljós að þessi efni hafa virkni gegn öldrun húðarinnar,“ segir Ása.
Rannsóknirnar eru unnar í samvinnu við Professor Jean Krutmann, einn færasta sérfræðing heims á sviði öldrunar húðarinnar. Hann flutti erindi við kynninguna og segir virk efni Bláa Lónsins veita sérstöðu á heimsvísu.
Mikil þróun á sér stað í snyrtivörum er vinna gegn öldrun húðarinnar. Hæfni virkra efna til þess er eitt það heitasta í snyrtivörurannsóknum í dag. Rannsóknaniðurstöður Bláa Lónsins á þessum vettvangi eru einstakar á heimsvísu. Krutmann segir að einstök náttúruleg virk efni Bláa Lónsins veiti Blue Lagoon húðvörunum einstaka stöðu á markaði í dag og jafnframt mikla möguleika sé litið til nánustu framtíðar og þeirrar þróunar sem nú á sér stað í snyrtivöruheiminum.
Sjáið fleiri myndir frá kynningu Bláa lónsins.
Í hópi gesta mátti sjá margar Suðurnesjakonur sem kynntu sér nýja þörungakremið.