Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

  • Fjölbreytt útivera og hreyfing á þemadögum
  • Fjölbreytt útivera og hreyfing á þemadögum
Sunnudagur 28. maí 2017 kl. 06:00

Fjölbreytt útivera og hreyfing á þemadögum

Á annað hundrað nemendur Heiðarskóla dönsuðu frumsaminn dans í lok þemadaga skólans. Þemadagarnir stóðu yfir í þrjá daga 22. - 24. maí. Þessa daga lögðu nemendur skólabækurnar til hliðar og tóku þátt í fjölbreyttri útiveru og hreyfingu. Það var meðal annars  boðið upp á ratleik, hjólreiðar, gönguferðir, útileiki, frisbeegolf, boltaþrautir og jóka. Í lok þemadaga lærðu nemendur dans sem sem nokkrir nemendur skólans höfðu samið. Nemendur á unglingastigi söfnuðust saman í íþróttasal skólans og dönsuðu saman dansinn sem þau voru að læra.

Public deli
Public deli