Fjölbreytt dagskrá í 88-húsinu

Meðal þess sem hæst bar má nefna FIFA 2007 mót sem haldið var í upphafi nóvember, en Ólafur Jón Jónsson, leikmaður Keflavíkur í úrvalsdeild bar þar sigur úr býtum. Fjölmargir þátttakendur voru og stemmningin góð.
Þá lauk borðtennismóti 88-hússins á þriðjudag þar sem Guðni Oddur var hlutskarpastur og Aðallinn í FS hélt vel heppnað spilamót.
Þá má þess einnig geta að graffarinn Jogi hefur skreytt kjallara hússins af alkunnri snilld.
Margt er á dagskrá í húsinu á næstu dögum, en þar má nefna Tónaflæði, en síðasta Tónaflæðiskvöld þótti takast með afbrigðum vel.

Þannig er ljóst að enginn þarf að láta sér leiðast í skammdeginu því fjörið er að finna í 88-húsinu.