Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Fjölbreytt dagskrá á laugardegi - árgangaganga, fornbílar og tónleikar
Frá keppninni Sterkasti maður Suðurnesja í dag. Vf-mynd/pket.
Laugardagur 1. september 2018 kl. 12:35

Fjölbreytt dagskrá á laugardegi - árgangaganga, fornbílar og tónleikar

Einn af vinsælustu viðburður Ljósanætur frá upphafi er Árgangagangan sem farin verður í dag kl. 13:30. Þá hittast árgangarnir við húsnúmer við Hafnargötu sem samsvarar fæðingarári viðkomandi. Yngsta kynslóðin hefur gönguna og marserar niður Hafnargötu í gegnum heilt æviskeið. Þeir eldri bíða og horfa á æskuna renna hjá þar til röðin kemur að þeim að bætast við. Á göngunni í ár verður 1968 árgangurinn heiðursárgangurinn eins og alltaf þegar árgangur stendur á fimmtugu. Árgangarnir sameinast svo framan við sviðið á hátíðarsvæði við Bakkalág þar sem dagskrá verður í allan dag.

Þeir sem hafa saknað akstur fornbíla niður Hafnargötu geta tekið gleði sína á ný því þeir munu aka að Keflavíkurtúni frá kl. 15:00 ásamt mótorhjólum úr Bifhjólaklúbbnum Erni. Hátindur Ljósanætur verður svo við sviðið á hátíðarsvæði þegar stórtónleikar hefjast kl. 20:30. Þar koma fram Jói P og Króli, Áttan, Stjórnin og Bjartar Guðlaugsson ásamt stórhljómsveit. Undir lok tónleika hefst flugeldasýningin á Berginu sem í framhaldi verður upplýst fyrir veturinn. Þeir allra hörðustu geta skellt sér í gospelmessu í Keflavíkurkirkju að lokinni flugeldasýningu.
 
Dagskrá ljósanætur er í heild sinni á http://ljosanott.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024