Fjólan og Elgurinn á Flughóteli
Listakonan Fjóla Jóns og ljósmyndarinn Ellert Grétarsson (elg) leiða saman hesta sína á samsýningu á Ljósanótt. Sýningin, sem verður á Flughóteli, verður opnuð fimmtudaginn 1. sepetmber 17:15 og lýkur sunnudaginn 4. sept. kl. 18:00.
Fjóla Jóns hefur fengist við myndlist síðustu tvo áratugina og hefur fengið útrás fyrir sköpunargleði sína í ýmsum miðlum. Fjóla hefur haldið fjölmargar sýningar í gegnum árin, bæði einka- og samsýningar. Ljósanótt hefur löngum verið fastur liður í starfi hennar og nú í ár sýnir hún verk sem hún hefur unnið á þessu ári. Þar hefur hún haft að leiðarljósi regluna um að minna sé meira (Less is more), og að ekki sé nauðsynlegt að vera með fjölda lita til að ná fram þeim hughrifum sem hún stefnir að.
Náttúruunnandinn Ellert Grétarsson hefur undanfarin ár ferðast fótgangandi um fagra Ísland með myndavélina um hálsinn. Margir hafa hrifist af ljósmyndum hans af íslensku landslagi og náttúru sýning hans í Duushúsum á síðustu Ljósanótt vakti mikla athygli. Ellert hefur haldið fjölda sýninga hér heima og erlendis og unnið til alþjóðlegra viðurkenninga.
Opnunartími:
Fimmtudagur 17:15 - 21:00
Föstudagur 10:00 - 21:00
Laugardagur 10:00 - 21:00
Sunnudagur 12:00 - 18:00