Fiskur undan steini - Sjóarinn síkáti er hafinn

Sjóarinn síkáti hófst formlega í gær þegar leikskólabörn í Grindavík, af Laut og Króki, mættu öll með tölu á Víkurbrautina og skreyttu girðinguna á móti verslunarmiðstöðinni í tilefni sjómannadagshelgarinnar.
Yfirskriftin var Fiskur undan steini sem er söguleg tilvísun og vel við hæfi.
Leikskólakrakkarnir höfðu augljóslega lagt mikla vinnu í skreytingarnar en aðallega mátti sjá ýmsa furðufiska. Krakkarnir gáfu tóninn og framundan er skemmtileg helgi í Grindavík, Sjóarinn síkáti og Sjómannadagurinn.
Texti og myndir: www.grindavik.is