Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Mannlíf

Fimm snjöll: Hollusta og skipulag í fyrirrúmi
Laugardagur 7. maí 2016 kl. 08:00

Fimm snjöll: Hollusta og skipulag í fyrirrúmi

Ágústa Valgeirsdóttir er verkefna og vöruþróunarstjóri hjá geoSilca

Ágústa Valgeirsdóttir er verkefna og vöruþróunarstjóri hjá hinu ört vaxandi fyrirtæki geoSilica.
Keflvíkingurinn Ágústa er mikið á ferðinni og sinnir annasömu starfi. Hún notast því mikið við forrit sem hjálpa henni við skipulag verkefna og ýmissa funda. Eins er hún mikið fyrir matargerð og hreyfingu og notar ýmis forrit til þess að fá góðar hugmyndir á þeim vígstöðvum.

Dagatal / reminder
Þetta er svona standard app í öllum snjallsímum í dag. En ég veit ekki hvar ég væri án þess. Ég set allt inn í dagatalið. Það er svo skondið að hausinn á manni virðist alltaf vera mest virkur svona rétt áður en maður fer að sofa (já ég á það til að hugsa soldið mikið). Þá hef ég gert það að vana mínum að punkta hugmyndirnar niður í dagatalið og minna mig á það daginn eftir. Þetta róar hugann og hjálpar mér að sofna. Síðan set ég það annað hvort inn í Evernote eða smartsheet eftir hvað við á. Ég nota dagatalið líka til þess að skipuleggja alla fundi hjá geoSilica og persónulega viðburði sem ég sæki. Eins og margir vita þá er hægt að senda fundarboð á viðtakendur til þess að sjá hversu margir verða viðstaddir fundinn. Þetta er algjört lykilatriði í öllum viðskiptum í dag.

Smartsheet
Þegar ég er að skipuleggja stærri verkefni þá nota ég smartsheets. Smartsheet er uppbyggt á  svipaðan hátt og MS project frá Microsoft nema það er mun einfaldara í notkun. Hægt er að vera með allt frá einföldum to-do lista yfir í mjög ítarlega skipulagt verkefni með verkferlum, tímasetningu, ábyrgðaraðilum á verkþáttum og fleira. Ég hef einnig verið að nota Trello og Asana en allt eru þetta verkefnastjórnunar öpp eða forrit sem hjálpa fólki við að halda utan um og stýra verkefnum. Ég mæli með Trello fyrir fólk sem er ekki vant því að nota verkefnastjórnunar forrit því það er enn einfaldara í notkun.

Evernote
Evernote er líka algjör snilld! Ég er bæði með appið í símanum mínum og tölvunni og það „syncar“ allt sem sett er þangað inn. Við hjá geoSilica notum Evernote mjög mikið. Við höfum til dæmis vanið okkur á að skrifa niður öll „minutes of meetings“ þar inni í sameiginlegri möppu.  Ég myndi lýsa Evernote sem Notes á sterum, þá meina ég Notes sem er innbyggt í apple tölvum. Hægt að vera með mismunandi möppur utan um mismunandi viðfangsefni og minnismiða innan hverrar möppu. Það er innbyggt spjall og hægt að deila möppum eða minnismiðum með öðrum.

Inbox by google
Annað forrit sem ég nota mjög mikið er tölvupósturinn minn. Ég er nýlega byrjuð að nota Inbox by Google sem er algjör snilld. Allt er miklu sjónrænna og auðveldara í notkun en þessi hefðbundnu mail forrit. Það er hægt að flokka allt niður, setja tölvupósta á „snooze“ til þess að svara seinna, búa til „reminder“ sem minnir á að hringja, senda tölvupósta, hitta eitthvern á ákveðnum tíma og margt margt fleira. Þetta forrit er sett þannig upp að þú ættir ekki að þurfa að nota dagatalið en hins vegar getur það ekki sent fundarboð á aðra viðtakendur eins og dagatalið gerir, það kemur vonandi í framtíðinni. 

Pinterest
Ég hef mjög mikinn áhuga á öllu sem viðkemur heilsu og heilsusamlegum lífstíl. Ég stunda líkamsrækt að kappi og hef ástríðu fyrir matargerð. Ég nota því Pinterest mjög mikið þegar ég er að leita að hollum og góðum uppskriftum og fá hugmyndir af mat, eftirréttum og fleiru.

My fitness pal
Ég er búin að vera í einkaþjálfun hjá Einari Kristjáns frá því í september í fyrra og byrjaði ég þá að nota þetta app fyrir alvöru. Þetta app segir þér nákvæmlega hversu margar kaloríur, prótein, kolvetni og fita er í matnum sem þú borðar yfir daginn. Það sýnir þér einnig hversu mikið af trefjum, vítamínum og steinefnum þú hefur innbyrgt yfir daginn. Appið býður einnig upp á að hlaða inn uppskriftum á netinu og setja inn eigin uppskriftir. Með þessu er hægt að hafa góða yfirsýn yfir það sem maður er að láta ofan í sig. Til þess að byrja með þá er þetta frekar mikil vinna en það þarf að vigta allt sem þú borðar og annað hvort stimpla það inn eða nota strikamerkið á vörunni og þá koma innihaldslýsingar af vörunni beint inn í appið. Því lengur sem ég hef notað þetta app því meðvitaðri er ég með hvað ég er að láta ofan í mig.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn