Fimm fulltrúar frá Ungmennaráði í Stykkishólmi
Ungt fólk og lýðræði 2015
Ungmennaràð Reykjanesbæjar àtti fimm fulltrúa à ràðstefnunni Ungt fólk og lýðræði sem stóð yfir í Stykkishólmi dagana 25. - 27. mars.
Ungmennin fengu þjàlfun frà Dale Carnegie og tóku þàtt í VR skólanum.
Forvarnarsjóður Reykjanesbæjar styrkti hópinn til fararinnar og er íþrótta- og tómstundaràði færðar kærar þakkir fyrir.
Þau sem fóru í ferðina til Stykkishólms heita Thelma Rún Matthíasdóttir formaður, Thelma Lind Karladóttir varaformaður. Gísli Freyr Njàlsson, Berglind Ásta Kristjànsdóttir og Lovísa Lóa Annelsdóttir. Fararstjóri ferðarinnar var Hafþór Birgisson. Alls tóku um 80 ungmenni þàtt víðsvegar af landinu.
Ungmennaràð mun funda síðari fundinn sinn með bæjarstjórn Reykjanesbæjar þann 19.maí nk. Undirbúningurinn fyrir þann fund hefst strax eftir pàska.
Í gönguferð upp á höfðann.
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri ávarpaði mannskapinn.