1. maí 2024
1. maí 2024

Mannlíf

Fiðla og píanó á tónleikum í Bergi
Föstudagur 12. apríl 2024 kl. 14:31

Fiðla og píanó á tónleikum í Bergi

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar stendur fyrir fiðlu- og píanótónleikum í Bergi, Hljómahöll, þriðjudaginn 16. apríl kl.19:30. Fram koma snillingarnir Joaquín Páll Palomares, fiðluleikari, og Sebastiano Brusco, píanóleikari. Á efnisskránni eru verk eftir W.A. Mozart, B. Bartók, F. Chopin, V. Monti og C. Franck.

Páll Palomares, sem er ættaður héðan úr Reykjanesbæ, er einn af fremstu fiðluleikurum landsins. Hann hóf fiðlunám sex ára gamall undir handleiðslu foreldra sinna, Unnar Pálsdóttur og Joaquín Palomares. Hann gegnir nú stöðu leiðara annarrar fiðlu í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Áður gegndi hann sömu stöðu hjá Randers Kammerorkester í Danmörku.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Páll hefur leikið fjölda einleikskonserta með hljómsveitum á íslenskri og erlendri grundu og ber þar hæst að nefna fiðlukonserta eftir Sibelius og Tchaikovski með Sinfóníuhljómsveit Íslands, fiðlukonsert Brahms með Sinfóníuhljómsveit Árósa, fiðlukonsert eftir Beethoven með Sinfóníuhljómsveit Torrevieja, fiðlukonsert eftir Mozart með Orquesta Sinfónica de la Región de Murcia og Árstíðirnar eftir Vivaldi með Orchestra Femminile Italiana. Páll er jafnframt virkur í kammertónlist og hefur haldið tónleika á Íslandi og víða í Evrópu.

Páll hefur hlotið margvísleg verðlaun á ferli sínum. Hann var sigurvegari íslensku keppninnar „Ungir einleikarar“  árið 2007, hlaut verðlaun í alþjóðlegu keppninni „Danish String Competition“ árið 2014 auk fjölda annarra verðlauna í keppnum Konunglega tónlistarháskólans í Kaupmannahöfn. Hann hefur sótt masterklassa hjá mörgum af virtustu fiðluleikurum heims. Páll lauk meistaragráðu og síðar einleikararnámi við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn árið 2018 og lauk einnig bakkalárgráðu frá hinum virta Hochschule für Musik „Hanns Eisler“ í Berlín árið 2013. Áður en Páll hóf námsferil sinn erlendis lauk hann námi við Tónlistarskóla Kópavogs og Listaháskóla Íslands.

Hann er meðlimur og einn af stofnendum Kordo kvartettsins sem hefur notið mikilla vinsælda hérlendis síðan 2020.

Páll leikur á fiðlu smíðaða af Nicolas Gagliano árið 1761 að talið er.

Sebastiano Brusco, píanóleikari, er fæddur í Róm. Hann hóf tónlistarnám mjög ungur og miklir tónlistarhæfileikar hans komu fljótt í ljós og snemma á námsferlinum fékk hann sérstaka viðurkenningu frá Tónlistarskólanum „F. Morlacchi“ í Perugia á Ítalíu, þar sem hann stundaði nám.

Sebastiano hefur unnið til margra verðlauna, bæði í heimalandinu sem og víðar og má þar nefna fyrstu verðlaun í Carlo Soliva alþjóðlegu keppninni (1998), fyrstu verðlaun í Gubbio Festival keppninni, verðlaun í keppninni „Provincia di Caltanissetta“ auk margra annarra.

Hann hefur komið víða fram sem einleikari með sinfóníuhljómsveitum víða um heim, leikið undir stjórn hljómsveitarstjóra á borð við R. Chailly, C. Scimone, R. Hickox, F. Totan, R. Gandolfi og V. Antonellini.

Sebastiano hefur gefið út geisladisk með öllum „impromptus“ verkunum fyrir einleikspíanó eftir F. Schubert og er þessa dagana að taka upp allar ballöður F. Chopin og nokkrar noktúrnur, etýður og pólónesur eftir sama tónskáld.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir.

Gengið inn um inngang Tónlistarskólans.