„Féþúfur og lásagrös“ - síðasta sýningarhelgi
„Féþúfur og lásagrös“ sýning Ólafar Nordal í Suðsuðvestur lýkur næstkomandi sunnudag, 3.apríl . Eins og titill sýningarinnar gefur til kynna er á sýningunni að finna fjögra blaða smára frá síðasta sumri ásamt ljósmyndum af fuglaþúfum.
Ólöf Nordal stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk síðan mastersprófi frá Cranbrook Academy of Art, Michigan og MFA frá höggmyndadeild Yale Háskólans í New Haven, Bandaríkjunum. Verk Ólafar er að finna í öllum helstu listasöfnum landsins auk einkasafna í ýmsum löndum. Hún hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar fyrir list sína eins og úthlutun úr Listasjóði Dungal, Erró-styrkinn og viðurkenningu úr höggmyndasjóði Richard Serra.
Af einkasýningum má nefna sýningarnar Corpus dulcis (1998) og Íslenskt dýrasafn (2005) í Gallerí i8; Ropi (2001) í Nýlistasafninu og Hanaegg (2005) í Listasafni ASÍ.
Verk í almannarými má nefna Geirfugl(1997), sem stendur í Skerjafirðinum í Reykjavík, Vituð ér enn – eða hvað?(2002) í Alþingishúsinu og Bollasteinn(2005) á Seltjarnarnesi. Frá árinu 2007 eru verkin Bríetarbrekka, minnisvarði um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur í Þingholtsstræti í Reykjavík og Fuglar himinsins, altarisverk í Ísafjarðarkirkju.
Árið 2010 hélt Ólöf einkasýninguna Leiðasla í Hallgrímskirkju og sama ár var einkasýning hennar Fyrirmyndir í Listasafni ASÍ, liður í Listahátíð í Reykjavík. Sýningin stendur til 3.apríl.
Suðsuðvestur er á Hafnargötu 22 í Reykjanesbæ. www.sudsudvestur.is
Opnunartími er frá kl.14:00 til 17:00 og eftir samkomulagi í síma 662 8785.