Fetað til framtíðar í fjörunni
Skemmtilegt stígvélaverkefni leikskólabarna á Holti
Fetað til framtíðar í fjörunni er skemmtilegt stígvélaverkefni leikskólans Holts sem hægt verður að skoða á Ljósanótt. Verkið var formlega afhjúpað í morgun. Þar eru sýnd listaverk unnin af nemendum leikskólans þar sem stígvél eru í aðalhlutverki.
Barnastígvélin í stígvélagarðinum eru meðfram fjörugarðinum fyrir neðan tjarnirnar í Innri Njarðvík þar sem börnin tjá hugmyndir sínar um fjöruna í máli og myndum.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson