Þriðjudagur 4. nóvember 2008 kl. 17:34
Fermingarbörn raka inn peningum í hjálparstarf
Í gærkvöldi tóku fermingarbörn Keflavíkurkirkju þátt í söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar. Þau gengu hús úr húsi í sókninni og söfnuðu 199.200 kr. Starfsfólk Keflavíkurkirkju vill fyrir hönd Hjálparstarfsins þakka kærlega fyrir móttökurnar og fermingarbörnunum fyrir þeirra framlag.