Ferill, tónlist og bransasögur Rúna Júl
Fyrsta sýningin í Stapa eftir opnun Hljómahallar.
„Þetta verða ekki bara tónleikar, þetta verður sýning þar sem farið verður í söguna að baki hverju lagi og ferli pabba gerð góð skil. Þetta verður líka fyrsta sýningin sem haldin hefur verið í Stapa eftir að Hljómahöll opnaði. Við völdum líka Stapa og persólega umgjörð í stað þess að hafa þetta stóran viðburð t.d. í Hörpu því við viljum efla menningu í heimabænum okkar,“ segja bræðurnir Baldur og Júlíus Guðmundssynir. Faðir þeirra, kelvíska rokkgoðið Rúnar Júlíusson, hefði orðið sjötugur 13. apríl og af því tilefni verða haldnir í Stapa, Hljómahöll, 11. apríl og bera þeir nafnið Sveitapiltsins draumur - Rúnar Júl 70.
Bestu söngvarar landsins
Á tónleikunum verður ferill Herra Rokks rakinn í máli, myndum og músik undir léttri leiðsögn fjölskyldu Rúnars ásamt einvala liði söngvara og hljóðfæraleikara. Spurðir um hvort kappkostað hefði verið að fá heimafólk í lið með fjölskyldunni til að troða upp, segjast þeir einfaldlega hafa viljað fá besta fólkið. „Valdimar er besti söngvari á landinu og Salka Sól líka. Það vill svo bara til að Valdmar er mjög tengdur fjölskyldunni okkar á ýmsan hátt og það er því bara mjög ánægjulegt. Fyrsta plata hljómsveitarinnar Valdimar var t.a.m. tekin upp í Geimsteini.“ Auk Valdimars og Sölku Sólar flytja Stefán Jakobsson og Magni Ásgeirsson öll bestu lög Rúnars ásamt sérvalinni rokksveit undir styrkri stjórn Jóns Ólafssonar.
Einstakur viðburður
Rúnar var þekktur fyrir söng og bassaleik með mörgum af þekktustu rokkhljómsveitum Íslandssögunnar en hans er einnig minnst fyrir elju, hvatningu til ungra listamanna, húmor og einstaka ljúfmennsku. Á tónleikunum fáum við að heyra hvaðan lögin koma, nokkrar góðar bransasögur og ekki síst söguna á bak við manninn. Nær uppselt er á tónleikana og segjast bræðurnir ekki hafa haft áhyggjur af miðasölu. „Það verða engir aukatónleikar, þetta er einstakur viðburður sem ekki verður endurtekinn. Við ákváðum líka að hafa ungt fólk með okkur í þessu í stað gömlu kempanna sem störfuðu mikið með pabba. Þær skiluðu sínu vel á minningartónleikunum sem haldnir voru skömmu eftir andlát hans. Margar þeirra koma líka fram á afmælistónleikum Gunnars Þórðarsonar í Hörpu,“ segir Baldur og bætir við að Suðurnesjamenn gætu alveg verið meðvitaðri um alla þá menningarviðburði sem sem sé boði á svæðinu og vera duglegri við að sækja þá. „Eitt fimmtudagskvöldið voru hér a.m.k. fimm viðburðir í gangi í Reykjanesbæ, flestir stórir. Það segir heilmikið.“
VF/Olga Björt