Ferðalangurinn og ljósmyndarinn Þorsteinn Jósepsson
Sýning í Bíósal, Duushúsum Reykjanesbæ, 2. mars til 7. apríl 2013
Þorsteinn Jósepsson (1907-1967) var frá Signýjarstöðum í Borgarfirði, hann var kunnur ljósmyndari, blaðamaður og rithöfundur. Um 1940 hóf hann störf hjá dagblaðinu Vísi og var þar í rúman aldarfjórðung. Þorsteinn ferðaðist vítt og breitt um landið og tók myndir. Hann safnaði og gaf út bækur og ritaði fjölda greina í innlend og erlend tímarit, ekki síst í árbækur Ferðafélags Íslands þar sem hann sat í stjórn frá 1942 til dauðadags. Þorsteinn var mjög frambærilegur ljósmyndari og myndir hans birtust í bókum á borð við Ísland í myndum og Landið þitt. Ljósmyndir Þorsteins hafa mikið heimildargildi vegna þess hversu yfirgripsmikil og margþætt skráning hans á landi og lífsháttum var. Safn Þorsteins er eitt það heildstæðasta og merkasta frá miðri síðustu öld. Safnið er nú í eigu Ljósmyndasafns Íslands.
Sýningar á ljósmyndum Þorsteins hafa farið víða um landið en sýndar eru myndir sem tengjast hverjum stað. Í Duushúsum verður athyglinni beint að Gullbringusýslu og þar má finna margar áhugaverðar ljósmyndir einkum loftmyndir. Á þessum sýningum hafa safnast mikilvægar upplýsingar frá gestum sem tengdar eru þessum myndum og er fólk hér um slóðir hvatt til að deila þekkingu sinni. Á tjaldi verða einnig sýndar ljósmyndir frá Byggðasafni Reykjanesbæjar.
Byggðasafn Reykjanesbæjar og Þjóðminjasafn Íslands.