Fengu málverk frá fyrrum forsætisráðherra
Glæsileg viðbót við sýninguna Heimskautin heilla, segir umsjónarmaður Þekkingarsetursins.
Þekkingarsetri Suðurnesja barst á dögunum glæsileg viðbót við sýninguna Heimskautin heilla sem fjallar um líf og störf franska vísindamannsins og heimskautafarans Jean-Baptiste Charcot. Edda Guðmundsdóttir, ekkja Steingríms Hermannssonar fyrrverandi forsætisráðherra, afhenti Þekkingarsetrinu málverk af Charcot til varðveislu. Verkið hafði Hermann Jónasson, faðir Steingríms og fyrrverandi lögreglustjóri og forsætisráðherra, fengið að gjöf frá listmálaranum sjálfum um það leyti sem rannsóknaskip Charcot fórst við strendur Íslands árið 1936. Málverkið er tölusett og áritað til Hermanns. Steingrímur fékk verkið síðar frá föður sínum og hefur það verið í eigu fjölskyldunnar í áratugi. Viðburður þessi var hluti af Jarðvangsviku á Reykjanesi.
Frá afhendingunni inni á sýningunni Heimskautin heilla.
Edda Guðmundsdóttir afhúpar verkið ásamt Hönnu Maríu Kristjánsdóttur, forstöðumanni Þekkingasetursins.
Guðmundur Steingrímsson tók til máls.