Bygg
Bygg

Mannlíf

Fékk verðlaun fyrir Sprunguskannann
Föstudagur 5. október 2007 kl. 09:17

Fékk verðlaun fyrir Sprunguskannann

Hlynur Þór Helgason, ungur hugvitsmaður úr Reykjanesbæ, náði afar góðum árangri á Nýsköpunarkeppni Grunnskólanna sem fór fram í Grafarvogskirkju á sunnudag.
Hann lenti í þriðja sæti í flokknum hugbúnaður og tölvuleikir með uppfinningu sína sprunguskannann, en hún er hugsuð sem nauðsynlegt tæki fyrir þá sem eiga leið um jöklasvæði. Skannann má til dæmis festa á mælaborð á vélsleða en á því er radar sem sendir frá sér bylgjur og nemur það hvort loft sé undir yfirborðssnjónum. Ef svo er heyrist viðvörunarhljóð í hjálmi ökumanns sem getur þá gert viðeigandi ráðstafanir. Hlynur er ekki ókunnugur slíkum aðstæðum því hann fer stundum í vélsleðaferðir með pabba sínum.


Hlynur, sem er í 8. bekk í Heiðarskóla, sagði í samtali við Víkurfréttir að keppnin hafi verið mjög skemmtileg, en hann var samt ekki viss um að hann ætlaði að leggja uppfinningamennsku fyrir sig í framtíðinni. Fróðlegt verður þó að sjá hvort sprunguskanninn verði einhvern tíma að veruleika.


Hann var fyrst valinn í 52 manna hóp úr 3000 umsækjendum, en eftir það var hópurinn kallaður saman í vinnuviku að útfæra hugmyndirnar undir handleiðslu fagmanna á ýmsum sviðum og svo er komið að hápunktinum, sjálfri lokahátíðinni.


Í ár var mikið af skemmtilegum hugmyndum og var það forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem sá um að afhenda verðlaunin. Fleiri krakkar af Suðurnesjum komust í úrslitin, en það voru þau Kristján Sigurjónsson, Marinó Örn Ólafsson, Skapti Benjamín Jónsson, Brynjar Freyr Garðarsson og Axel Snorrason, einnig úr Heiðarskóla, og Andrea Rún Magnúsdóttir úr Stóru-Vogaskóla.
 
VF-mynd/Þorgils – Hlynur með kynningarveggspjaldið sem hann gerði með Sprunguskannanum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn