Fékk bráðaofnæmiskast á jólunum
Matthildur Emma Sigurðardóttir
Matthildur Emma er mikið jólabarn og segir samverustundir með fjölskyldunni, jólaljósin, pakkarnir og snjórinn vera það skemmtilegasta við jólin. Hún elskar jólin en hún man mest eftir þeim jólum er hún fékk fyrsta bráðaofnæmiskastið sitt og þorði ekki að segja neinum frá því.
Hvað stendur upp úr hjá þér árið 2022?
Að fara til Spánar stendur mest upp úr hjá mér, það var svo gaman. Svo auðvitað líka að byrja í framhaldsskóla og kynnast þeim æðislegu vinum sem ég á núna.
Ert þú mikið jólabarn?
Já, ég myndi segja að ég er mjög mikið jólabarn, ég elska jólin.
Hvað er það skemmtilegasta við jólin að þínu mati?
Það skemmtilega við jólin er að vera með fjölskyldunni, skoða jólaljósin, snjórinn og auðvitað pakkarnir.
Átt þú einhverjar skemmtilegar jólaminningar?
Jólin sem ég man mest eftir voru jólin sem ég fékk fyrsta bráðaofnæmiskastið mitt. Ég var átta ára og var með ömmu minni hjá frænda mínum og hann bauð mér nammi. Ég sagði nei en stalst svo í það seinna, einni mínútu eftir að ég fékk mér það fór ég að finna fyrir kláða. Ég og amma fórum heim en ég sagði ekkert því ég þorði því ekki. Þegar ég var komin heim sagði ég engum, fór út í horn hjá ísskápnum, sneri mér að veggnum og fór að hágráta. Elsta systir mín reyndi að tala við mig en ég sagði ekkert. Mamma var lengi að reyna að ná úr mér hvað væri í gangi þangað til ég sneri mér við, þá var neðri vörin mín tvisvar sinnum stærri en vanalega. Ég drakk mjög mikið af mjólk og þá hætti kláðinn og allt varð betra.
En skemmtilegar jólahefðir?
Ég og amma mín höfum alltaf farið saman í messu kl. sirka 16:00 svo eftir það höfum við farið og hitt langa langlang ömmu og afa í kirkjugarðinum.
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið?
Eftirminnilegasta jólagjöfin er þegar ég fékk miða á Ed Sheeran tónleika, besta jólagjöf sem ég hef fengið er örugglega rafmagnsgítarinn minn.
Hvað er á óskalistanum þínum fyrir jólin í ár?
Ekkert sérstakt, langar samt smá í myndavél því mér finnst gaman að taka myndir.
Hvað er í matinn hjá þinni fjölskyldu á aðfangadag?
Það er alltaf humarsúpa í forrétt svo hamborgarhryggur.
Hvað ætlar þú að gera í kringum jólahátíðina í ár?
Ég ætla að gera fullt af eitthverju skemmtilegu, fara á skauta, baka, fara í jólaþorp útum allt, vera með fjölskyldunni og vinum, spila og margt fleira.