Bygg
Bygg

Mannlíf

Mánudagur 10. júlí 2000 kl. 13:13

Fékk 20 tonna hval á sjóstöng!

Báturinn Hvalbakur hefur verið gerður út frá Grófinni sl. 4 sumur, en eigendur hans eru Jón Sæmundsson, fv. skipstjóri og útgerðarmaður, og Valdimar Axelsson, fv. sjómaður og húsvörður í Holtaskóla. Fleyið er 7 tonn að stærð með pláss fyrir 14 farþega, en 8 sjóstangir eru um borð. Jón og Valdi fara með fólk í hvalaskoðunarferðir og sjóstangaveiði eftir samkomulagi, og þá er iðulega siglt í kringum Garðskagann. Að sögn Valda keyptu þeir félagar bátinn upphaflega sér til ánægju og yndisauka en síðan kom Helga Ingimundardóttir að máli vð þá og benti þeim á að mikil eftirspurn væri eftir skemmtiferðum fyrir ferðamenn. „Þá var bara einn bátur með hvalaskoðun á svæðinu, Hnossið. Við vorum að standsetja Hvalbak þegar Helga talaði við okkur, og ákváðum að slá til. Í dag eru fimm bátar sem bjóða uppá skemmtiferðir, þ.e. Andrea, Gestur, Elding, Hvalbakur og Hnoss, framboðið er því orðið mjög gott“, segir Valdi og bætir við að eftirspurnin fari sífellt vaxandi. Valdi hefur oft lent í góðri veiði, þegar hann hefur farið út með ferðamenn. „Fólk er fljótt að verða ánægt og við hættum yfirleitt þegar fólk er búið að fá það sem það vill, en við höfum verið að fá mjög mikið á sjóstöngina í sumar“, segir Valdi. Sumir eru fisknari en aðrir og Valdi rifjar upp sögu af amerískum ferðamanni sem krækti í 20 tonna hval í fyrrasumar. „Mikið var af hnúfubökum í kringum bátinn og Ameríkaninn krækti í einn þeirra þegar hann synti undir bátinn. Hnúfubakurinn reif auðvitað allt af hjólinu og stakk sér á bólakaf. Hann kom svo upp eftir smá stund, til að blása, og sleit allt saman af sér. Girnið var eins og tvinnaspotti í svo stórri skepnu, en hann hefur verið um 20 metrar á lengd. Kaninn var alveg í skýjunum yfir þessu og þótti hann heldur betur hafa sett í fisk“, segir Valdi og hlær.
Bílakjarninn
Bílakjarninn