Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Fegurstu garðar Vatnsleysustrandarhrepps verðlaunaðir
Mánudagur 8. ágúst 2005 kl. 11:58

Fegurstu garðar Vatnsleysustrandarhrepps verðlaunaðir

Vatnsleysustrandarhreppur veitti sín árlegu Umhverfisverðlaun á Fjölskyldudaginn í Vogum sl. föstudag.

Eftirtaldir fengu þar viðurkenningu: 

Guðjón Sverrir Agnarsson og Eyrún Antonsdóttir eigendur Aragerðis 16, hljóta viðurkenningu fyrir glæsilegan og vel við haldinn garð í stöðugri endurnýjun. Garðurinn er ævintýraheimur út af fyrir sig með skemmtilegum heimagerðum listaverkum úr ýmsum nytjahlutum og fjölbreyttum gróðri.

Alice Lid eigandi Vatnsleysu, hlýtur viðurkenningu fyrir fallegan, gróinn garð sem ræktaður er við mjög erfið skilyrði. Garðinn prýðir fjöldi harðgerðra plantna og hefur honum verið vel við haldið í áratugi. 

Oddgeir Arnar Jónsson og Halldór Viðar Jónsson, eigendur verktakafyrirtækisins Sparra ehf, og fasteignarfélagsins Bolafóts hljóta viðurkenningu fyrir skjótan frágang húsbygginga og góða umgengni á byggingastað við Brekkugötu 23, Austurgötu 2 og Mýrargötu 1. Húsin hafa risið á mjög skömmum tíma og um leið hefur umgengni á lóð verið til fyrirmyndar. Fyrir Austurgötu 2 var byggingarleyfi veitt í maí og nú eru hús og lóð fullfrágengin og til stakrar prýði.

Eigendur hesthúsanna í Fákadal, Vogum, Gunnar Andersen, Róbert Andersen, Heidi Andersen, Guðný Snæland, Hafsteinn Snæland, Jóhann S. Þorbjörnsson, Ólafur Guðmundsson, Helga Ragnarsdóttir og Guðrún Kristín Ragnarsdóttir hljóta viðurkenningu fyrir snyrtileg hesthús og umhverfi þeirra, ásamt uppgræðslu á svæðinu. Heildarsvipur götunnar er til fyrirmyndar.

Mynd 2 er frá garðinum á Vatnsleysu en hinar tvær frá Aragerði 16. Á hópmyndinni eru verðlaunahafar ásamt Jóhönnu Reynisdóttir.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024