Bygg
Bygg

Mannlíf

Fattaði að Grýla bakaði eins smákökur og mamma
Mánudagur 24. desember 2018 kl. 07:00

Fattaði að Grýla bakaði eins smákökur og mamma

Bryndís Kjartansdóttir man vel eftir því þegar Grýla bakaði alveg eins smákökur og mamma hennar og fannst það frekar mikið töff.

Ertu mikið jólabarn?
Já ég er það.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hvað er uppáhalds jólalagið þitt?
Þú og ég og jól með Svölu Björgvins.

Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar?
Yfirleitt síðustu vikuna fyrir jól, já það er þannig.

Áttu einhverja sérstaka minningu frá jólum?
Ég á ótrúlega margar fallegar minningar um jólin, ein er til dæmis þegar ég fékk smákökur í skóinn og fattaði að Grýla bakaði eins smákökur og mamma, mér fannst það frekar mikið töff.

Hvað er ómissandi á jólum?
Samvera með þeim sem manni þykir vænst um

Hvað finnst þér skemmtilegast um jólahátíðina?
Mér finnst allar þessar hefðir svo skemmtilegar

Bakar þú smákökur fyrir jólin?
Ekkert endilega alltaf en ég er búin að baka fyrir þessi jól

Hvenær setjið þið upp jólatréð?
Síðustu tvö ár höfum við sett jólatréð upp fyrsta sunnudag í aðventu. Við erum með 1200 ljós á trénu og það er pínu vinna, þannig að það er ljúft að gera þetta snemma og njóta.

Ertu með einhverjar fastar hefðir um jólin?
Á jóladagsmorgun koma fjölskyldan og vinir í heitt súkkulaði og rjóma, þetta er ótrúlega skemmtileg hefð.

Hvenær eru jólin komin hjá þér?
Þegar við spilum inn jólalögin 24. nóvember með laginu Þú og ég og jól, við syngjum hástöfum og dönsum með.

Hvar ætlar þú að verja aðfangadegi?
Við erum heima

Hvað verður í matinn á aðfangadag?
Hamborgarahryggur  

Eftirminnilegasta jólagjöfin?
Ég hef fengið margar fallegar jólagjafir, ein af mörgum er þegar amma mín Fjóla gaf mér penna um hálsinn, þá var það svakalega flott og svo ruslafötu í herbergið mitt. Einmitt þetta tvennt hafði mig langað svo mikið í.