Fallegt veður og jólastemmning í Selskógi
Jólatrjáasala og handverksmarkaður voru haldin í Selskógi við Þorbjörn á vegum Skógræktarfélags Grindavíkur um helgina. Við sama tilefni var undirritaður samstarfssamningur félagsins við Grindavíkurbæ. Stórt tjald var á staðnum og gestum og gangandi boðið upp á kakó og piparkökur. Ungir sem aldnir, auk örfárra ferfætlinga, nutu sín í afar fallegu og jólalegu veðri. Blaðamaður Víkurfrétta var á staðnum og smellti af nokkrum myndum.
Hestarnir voru hrifnir af athyglinni.
Börnunum fannst spennandi að kveikja í grenigreinum til að ná í jólailm.
Fulltrúar Skógræktarfélagsins.
Þessar mæðgur nutu sín.
Feðgarnir Gunnar og Guðmundur keyptu þrjú tré.
Þessir ungu herramenn dunduðu við að „brjóta ísinn“ með trjágreinum.
Þessar höfðu veg og vanda af markaðnum á staðnum.
VF/Olga Björt