Fagnar hundrað árum
Guðný Nanna Stefánsdóttir verður 100 ára á morgun, en hún er fædd 16. október 1922. Guðný Nanna býr enn í sínu eigin húsnæði að Suðurgötu 4 í Keflavík og er við góða heilsu.
Hún ólst upp mestan part í Keflavík. Foreldrar hennar voru Stefán Jóhannesson, f. 1896, d. 1930 og Þórdís Torfadóttir f. 1896, d. 1974. Hálfsystir hennar sammæðra var Ástríður Sigurðardóttir, f. 1920, d. 2001, og albróðir hennar var Torfi Stefánsson, f. 1925, d. 2006.
Guðný Nanna giftist Baldvini Ólafssyni frá Vestmannaeyjum, f. 1915, d. 1995. Þau bjuggu megnið af sinni ævi í Keflavík og eignuðust sjö börn. Fyrir átti Guðný Nanna einn son, Stefán Guðmundsson, d. 2022. Börn Baldvins og Nönnu eru: Gunnar Hjörtur, Marta d. 2016, Palla, Ásdís, Jóhanna, Ásta og Sóley. Afkomendur eru orðnir 150 .