Færeyskir málarar sýna í Listasafni Reykjanesbæjar

Þeir sem eiga verk á sýningunni eru: Amariel Norðoy, Bárður Jákupsson, Eyðun av Reyni, Kári Svensson, Torbjörn Olsen og Össur Mohr.
Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.
Sýningin er í sýningarsal Listasafnsins í Duushúsum og er opin alla daga frá 13:00 til 17:30 og stendur til 11. júní.
VF-mynd/ JBÓ: Frá opnuninni í gær, á myndinni eru þrír af þeim sex málurum sem sýna verk sín í Listasafninu.