Færði nemendum sérsmíðaðan „símaklefa“
Góður afi gulli betri
Í upphafi nýs árs fékk 10. bekkur AV í Myllubakkaskóla kærkomna heimsókn. Afi eins nemandans, Skúli Hermannsson, kom færandi hendi með sérsmíðaðan kassa undir farsíma. Um er að ræða vandaðan kjörgrip úr gegnheilli hnotu sem rúmar 30 síma í einu. Hugmyndin er að nemendur setji símana sína í kassann á meðan kennslustund stendur en geti svo nálgast þá þegar þeir fara í frímínútur. Þannig geta þeir hegðað sér samkvæmt væntingum skólans, sem segir að nemendur noti síma á ábyrgan hátt.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Skúli er nemendum innan handar. Fyrir jólin gaf hann þeim vandað skurðarbretti sem hann hafði unnið og það endaði sem einn af vinningunum i jólalukkuleik tíundu bekkinga. Þegar Stebbi húsvörður var búinn að festa gripinn upp á vegg í umsjónarstofu bekkjarins var ákveðið að slá upp veislu og bjóða afa í heitt súkkulaði og köku. Þegar Skúla var þakkað fyrir gjöfina sagði hann að Ámundínus Örn Öfjörð hefði lagt sér lið við verkið.
Heitt kakó og kaka á meðan Skúli spjallar við strákana.