Fær innblástur frá æskuslóðunum
- Brottfluttur Grindvíkingur heldur sýningu í menningarviku
Rúnar Þór Þórðarson, brottfluttur Grindvíkingur frá Bræðratungu, opnar málverkasýningu í Framsóknarhúsinu í Menningarvikunni sem hefst á morgun. Þetta er hans fyrsta einkasýning en hann hefur tekið þátt í þremur samsýningum. Rúnar Þór verður 65 ára á árinu og flutti frá Grindavík árið 1974. „Það er smá kvíði í manni en það verður gaman að sjá hvernig tekið verður á móti brottfluttum Grindvíkingi,“ segir Rúnar Þór og hlær.
Rúnar Þór sýnir aðallega myndir af bátum og frá landslagi í Grindavík sem hann málar bæði á striga og krossviðarplötur. „Mér var hent út af vinnumarkaðinum og byrjaði að fikta við þetta fyrir fimm árum eða svo. Í tvö ár var ég hjá Hlutverkasetrinu og þar var myndlistakona sem var að kenna og sótti ég tíma hjá henni í tvö ár. Við vorum fjögur sem stofnuðum svo saman myndlistarklúbb, leigðum okkur sal og þar höfum við málað frá tíu til þrjú einhverja daga í viku. Klúbburinn er enn starfandi,“ segir Rúnar Þór. Römm er sú taug og um leið og hann tók pensilinn í hönd leitaði hugurinn á heimaslóðir í Grindavík með viðfangsefni. „Ég er uppalinn í Grindavík, stundaði sjóinn og var í slorinu. Um leið og ég fór að mála komu æskuslóðirnar fram. Ég á fullt af skyldfólki í Grindavík og því verður gaman að koma þangað og halda sína fyrstu einkasýningu,“ sagði Rúnar Þór.
Sýningin verður opin frá klukkan 12:00 til 20:00 um helgina og frá 17:00 til 20:00 virka daga í næstu viku.