Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Eygló sýnir í Suðsuðvestur
Miðvikudagur 29. mars 2006 kl. 14:58

Eygló sýnir í Suðsuðvestur

Eygló Harðardóttir opnar sýningu í Suðsuðvestur í Reykjanesbæ Laugardaginn 1. apríl klukkan fjögur síðdegis.

Eygló er fædd í Reykjavík 1964.  Hún útskrifaðist frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og  lauk framhaldsnámi frá AKI - Akademie voor Beeldende Kunst en Industrie í Enschede, Hollandi árið 1990. 

Í  Suðsuðvestur setur Eygló saman sýningu með málverkum, ljósmyndum og myndbandi.

Nánari uppl. fást á: www.this.is/fyll/artists/eyglo/  eða www.sudsudvestur.is

Suðsuðvestur er við Hafnargötu 22 í Keflavík, opið er frá 14:00 - 17:00 um helgar og 16:00 - 18:00 fimmtudaga og föstudaga.

Það er enginn aðgangseyrir og allir eru velkomnir.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024