Evrópuverkefni gegn brotthvarfi úr námi
Áhersla er lögð á styrkleika og færni.
Sett hefur verið í gang evrópska Leonardo da Vinci verkefnið CAPWIN sem miðar sérstaklega að brotthvarfsnemendum og fagaðilum sem starfa með þeim hópi. Efnahagskreppa og fólksflutningar í Evrópu ýta undir erfiðleika sem mæta ungu fólki og stefna möguleikum þeirra til atvinnuþátttöku í hættu, auk þess að hafa í för með sér auknar félagslegar og heilsufarslegar afleiðingar.
Aðilar frá sjö Evrópulöndum starfa saman að verkefninu þar sem hver og einn leggur að mörkum reynslu og faglega sýn á brotthvarfsástand í hverju landi fyrir sig. Samstarfslöndin eru auk Íslands; Frakkland, Grikkland, Portúgal, Spánn, Rúmenía og Svíþjóð. Hver samstarfsaðili tengist ólíkum menntunarstigum, allt frá grunnskólum að fullorðinsfræðslu, og er áhersla lögð á að fá faglega innsýn hvort tveggja úr einka- og opinbera geiranum.
Markmið með verkefninu eru að þjálfa fagfólk til þess að vinna með brotthvarfsnemendum í gegnum Robert Michid aðferðina svokölluðu. Menntastofnunin Arc en Ciel, í Frakklandi hefur innleitt aðferðina sem einblínir á mikilvægi ákvarðana á daglegt líf en með því að skoða ferli ákvarðanatökunnar er aðferðinni ætlað að hafa varanleg áhrif á líf og líðan einstaklingsins.
Notkun aðferðarinnar ætti að gera fagfólki kleift að hjálpa nemandanum að tengjast aftur markmiðum sínum og komast aftur af stað í námi. Aðferðin, sem er sálfélagsleg og byggir á greiningu á ákvarðanatöku, þvert yfir menntunarstig, gerir það mögulegt að aðlaga markmið og úrræði fagaðila og endurskapa tengsl við færni og getu hvers einstaklings. Í stað þess að benda á það sem viðkomandi gerir illa eða rangt er athyglinni beint að færni og styrkleikum um leið og einstaklingurinn skoðar eigin ákvarðanatöku og ábyrgð.
Ásamt því að þjálfa fagfólk í að beita aðferðinni, í viðtölum og samtölum með nemendum, verða útbúin kennslumyndbönd sem sýna dæmi um aðferðina í heild sinni. TP Teatern í Svíþjóð mun vinna myndböndin, en leikhópurinn sérhæfir sig í gagnvirku leikhúsi þar sem settar eru á svið ákveðnar aðstæður sem síðan þarf að leysa úr með hjálp áhorfenda. Myndböndin eru hugsuð til notkunar við þjálfun og til þess að sýna fram á mögulegan árangur með aðferðinni. Markmiðið er að kynna aðferðina fyrir öllum samstarfsaðilum og innleiða hana í stofnanir þeirra. Hver aðili stuðlar svo að kynningu á sínu landssvæði sem og á landsvísu. Hjá hverjum samstarfsaðila verða því þjálfaðir fagaðilar sem nota og kenna aðferðina.
Það er von samstarfsaðilanna að verkefnið muni hafa mikil og jákvæð áhrif á brotthvarfsnemendur og stuðli að aukinni velferð þeirra. Áhersla er lögð á styrkleika og færni en ekki á það sem illa hefur gengið eða á slæma ákvarðanatöku. Robert Michid aðferðin er gott verkfæri til þess að skoða ákvarðanir í daglegu lífi og til þess að hjálpa einstaklingnum að efla sjálfstraust sitt og hæfni í námi.
Þeir sem hafa áhuga á að fræðast meira um verkefnið er bent á að hafa samband við Særúnu eða Guðjónínu hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.