Bygg
Bygg

Mannlíf

 „Erum smeyk við veturinn ef ekki koma nýir varnargarðar“
Kristólína Þorláksdóttir, Lína í Vík, og Sigrún Harpa Harðardóttir, barnabarn hennar, í fjárhúsinu. Með þeim á myndinni er dóttir Sigrúnar Hörpu.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
föstudaginn 14. október 2022 kl. 06:14

„Erum smeyk við veturinn ef ekki koma nýir varnargarðar“

– segir Kristólína Þorláksdóttir, Lína í Vík, 
en miklar skemmdir urðu á fjárhúsum 
hennar í flóðinu í janúar.

„Flóðið 2020 og í vetur voru mjög ólík. Það urðu bara lítilsháttar skemmdir á fjárhúsinu 2020 en túnin fóru ansi illa þá. Það var ekki skemmtilegt að hreinsa túnin en skólp Grindvíkinga fer í sjóinn ekkert fjarri þeim stað sem fjárhúsið okkar er og það skilaði sér því miður á túnin okkar,“ segir Kristólína Þorláksdóttir, Lína í Vík, eigandi fjárhússins í Vík í Grindavík en það varð fyrir miklum skemmdum í óveðri í byrjun janúar á þessu ári.  

Fréttamaður VF hitti Línu og Sigrúnu Hörpu Harðardóttur, barnabarn hennar, sem segir flóðið hafa komið með miklum látum á húsið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Það flæddi undir öll gólf og miðjan í húsinu hreinlega þurrkaðist í burtu.  Útveggir fóru og aðkoman var hrikaleg, húsið hékk nánast saman á lyginni.  Nokkuð ljóst að ef við hefðum ekki flutt kindurnar austur í hverfi til Ómars í Bjarmalandi, þá hefðu þær dáið drottni sínum“.

Lína í Vík segir að það hafi kennt ýmissa grasa í flóðinu síðasta vetur. 

„Það er ótrúlegt hvernig fólk getur gengið um og hverju það sturtar ofan í klósettin sín. Allt frá dömubindum í lyfjaglös en hver heilvita maður á að vita að þetta á að fara í ruslið, ekki á haf út!  Það var meira af grjóti sem kom í því flóði en í flóðunum í vetur var meira af sandi og krafturinn virðist hafa verið miklu meiri því fjárhúsið okkar var nánast að hruni komið.“

Þrjú hverfi í Grindavík

Skv. gömlum heimildum hófst byggð í Grindavík árið 934 en um aldamót nítjándu og tuttugustu aldarinnar var talað um þrjú hverfi í Grindavík, Þórkötlustaðahverfi austast, Járngerðarstaðahverfi fyrir miðju og Staðarhverfi vestast. Innan Járngerðarstaðarhverfis er bújörðin Vík en þar hefur löngum verið myndarlegur búskapur, bæði sauðfjárbúskapur og eins hafa hestar oft leikið stór hlutverk.

Talið er að fjárhúsið í Vík hafi verið byggt einhvers staðar á bilinu 1930-1940 af Guðjóni Gíslasyni. Fjárskipti urðu árið 1955 en það þýðir að farga þurfti öllu fé, ekki vegna riðuveiki heldur garnaveiki.  Við þau tímamót kom bróðir Guðjóns, Þorlákur, sterkur inn í búskapinn og fjárhúsið var stækkað til muna. Gamli hlutinn er í raun miðja hússins í dag en þegar mest var þá er talið að um 170 fjár hafi verið á vetrarfóðrum.

Veður eru oft válynd á okkar ylhýra skeri og hefur landinn heldur betur fengið að finna fyrir því að undanförnu.  Eftir frábæran septembermánuð þar sem veðrið minnti meira á Mallorca en Ísland, hafa tvær öflugar lægðir kíkt í heimsókn en þær létu meira á sér bera fyrir austan land. Síðustu vetur hafa hins vegar verið okkur hér á suðurhveli Íslands erfiðir og Grindvíkingar hafa ekki farið varhluta af því. Í ársbyrjun 2020 kom mesta flóð sem fróðir menn muna síðan 1924 og síðasta vetur komu tvö ansi myndarleg flóð og í þeim varð fjárhúsið í Vík fyrir miklum skemmdum. Minnstu munaði að húsið hryndi algerlega en það stóð en var ansi laskað og því þurftu eigendur að ráðast í miklar framkvæmdir.

Varnargarðar nauðsynlegir

„Þegar varnargarðarnir voru fjarlægðir einhvern tíma í kringum aldamótin, var alveg ljóst að hætta væri á ferðum. Það voru einhverjir íbúar Grindavíkur sem kvörtuðu, vildu meina að garðarnir skemmdu útsýnið en það er ansi líklegt að ef það koma ekki nýir garðar er bara tímaspursmál hvenær stærra tjón hlýst af. Við vitum að veðurfarið er að breytast, hvort sem það er gróðurhúsaáhrifum að kenna eða ekki en alla vega er ljóst að eitthvað þarf að gera. Við höfum verið í sambandi við vegagerðina og vonandi mun eitthvað gerast í þessum málum sem fyrst,“ segir Kristólína.

Hvernig gengu endurbætur?

„Við réðumst strax í endurbætur, auglýstum eftir bárujárni og timbri og mættum alls staðar mikilli velvild, við fengum m.a. afgangs timbur frá nýja Landsbankahúsinu í Reykjavík. Við höfum fengið efni nánast frá öllum landshlutum og erum ofboðslega þakklát fyrir viðtökurnar.  Það eru mjög laghentir aðilar innan fjölskyldunnar og við höfum ekki þurft að kaupa neina þjónustu iðnaðarmanna.“

Lína segir að það sé beigur í Víkurfólkinu fyrir komandi vetur.

„Ég er með hjartað í buxunum yfir komandi vetri. Ég mun ekki þola aðrar eins endurbætur og nokkuð ljóst að ég mun pakka saman ef við lendum aftur í svona tjóni. Þetta var ofboðsleg vinna og nú er bara að vona að Vegagerðin svari kallinu.“

„Miðjan í húsinu hreinlega þurrkaðist í burtu,“ segir Sigrún Harpa Harðardóttir.