Er jólaundirbúningurinn á fullu? Taktu myndir!
	Nú eru þrjú blöð til jóla hjá Víkurfréttum og af því að jólin eru að koma þá erum við í jólaskapi og fjölgum síðum í blaðinu. Ljósmyndarar og blaðamenn geta hins vegar ekki verið út um allt og því hverjum við fólk sem stendur í jólaundirbúningi, t.d. í jólaföndri í skólum eða laufabrauðgerð með vinnufélögum að taka myndir og senda til okkar ásamt upplýsingum um viðburðinn. Blaðamenn VF verða svo í sambandi.
	Við segjum því upp með myndavélina og smellið myndum af jólagleðinni í ykkar umhverfi og sendið myndir á [email protected].
	 


 
	
				


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				