Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Er 100 ára og langar að eignast lítinn ferðabíl næsta sumar
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 22. desember 2022 kl. 08:06

Er 100 ára og langar að eignast lítinn ferðabíl næsta sumar

Axel Friðriksson fagnaði 100 ára afmæli sínu í síðustu viku með kaffisamsæti á Nesvöllum í Reykjanesbæ. Axel býr í þjónustuíbúð á Nesvöllum og er hinn sprækasti en hann hefur verið virkur í húsbílasamfélaginu.

Þegar Axel flutti til Suðurnesja árið 1948 hóf hann störf hjá Karvel Ögmundssyni og starfaði þar í tíu ár. Þaðan fór hann til starfa í frystihúsi í Innri-Njarðvík í átta ár. Starfsferilinn endaði Axel svo hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur þar sem hann starfaði í 26 ár. Áður en Axel flutti suður með sjó bjó hann norður í landi og starfaði m.a. við vegagerð og einnig hjá síldarverksmiðjunni á Hjalteyri

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ástæða þess að Axel flutti til Suðurnesja var atvinnuleysi og því var bara að fara á vertíð. Að hans sögn komu vélar mikið við sögu á starfsævinni.

Axel segist hafa upplifað miklar breytingar á þessum 100 árum sem hann hefur lifað og hann fylgst með uppganginum á Suðurnesjum.

Axel er kunnur í húsbílasamfélaginu á Íslandi, enda einn af stofnendum Húsbílafélagsins sem verður 40 ára á næsta ári. Áður en hann fór að stunda húsbílaferðir þá var Axel duglegur að ferðast um landið á jeppum sem hann átti. Hann fór um allt land og ferðaðist einn, þar sem hann er bæði ógiftur og barnlaus. Hann átti m.a. fjóra frambyggða Rússa­jeppa um ævina sem voru mikið notaðir í hálendisferðir. Hann byrjaði m.a. í Húsbílafélaginu á Rússa­jeppa.

Axel lagði húsbílnum fyrir ári síðan. Ástæðan var ástand bílsins, sem að að eigin sögn var mun verra er bílstjórans. Húsbíllinn var orðinn ryðgaður, enda alltaf geymdur úti. Axel bjóst ekki við því að fá skoðun á bílinn í vor.

Axel segir það gera mikið fyrir sig að fara í húsbílaferðir. Félagsskapurinn sé góður og á fyrstu árum Húsbílafélagsins hafi verið bílar sem auðvelt var að fara með inn á hálendið. Í dag séu bílarnir annars konar. Það sé flottara að ferðast í þeim og allt rúmbetra en áður. Axel segist hafa farið allar skipulagðar ferðir Húsbílafélagsins og einnig margar ferðir á eigin vegum, hvort sem það var í Landmannalaugar, Þórsmörk, Fjallabaksleið eða upp á hálendið. Hann hafi m.a. farið einsamall á Gæsavatnaleið. Axel segir náttúru landsins fallega. Þegar hann er spurður hvort einn staður sé uppáhalds, þá segir hann þá marga. Þórsmörk og Landmannalaugar komi þó upp í hugann.

Aðspurður hvort hann sé alveg hættur ferðalögum, orðinn 100 ára gamall, segist Axel vera spenntur fyrir því að verða sér út um lítinn bíl næsta sumar ef heilsan leyfir.

Nánar er rætt við Axel í Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta og sýnt frá móttöku afmælisbarninu til heiðurs.