Enska hljómsveitin I'm Being Good í Keflavík í kvöld

I'm Being Good er kvartett frá strandborginni Brighton og hefur starfað í ýmsum myndum frá árinu 1992. Sveitin hefur gefið út þrjár plötur og hefur skipað sér í hóp með framsæknustu jaðarsveitum Breta. Á meðal aðdáenda sveitarinnar var útvarpsmaðurinn John heitinn Peel sem bauð þeim nokkrum sinnum í hinar annáluðu Peel Sessions.