Enn lausir miðar á styrktartónleika krabbameinssjúkra barna
Enn eru lausir miðar á árlega styrktartónleika í Háskólabíói til styrktar krabbameinssjúkum börnum. Þetta er í tólfta sinn sem tónleikarnir eru haldnir. Concert, fyrirtæki Einars Bárðarsonar í Reykjanesbæ og EB Kerfi í samvinnu Miði.is og Háskólabíó standa fyrir tónleikunum.
Það er orðinn árviss viðburður, að framvarðarsveit íslenskrar popptónlistar komi saman við áramót í Háskólabíói við Hagatorg og stilli saman strengi til styrktar SKB. Árið í ár er engin undantekning og hefur dagskráin sjaldan eða aldrei verið eins glæsileg. Á undanförnum árum hafa yfir 30 milljónir króna safnast á þessum
ónleikum, og nú er markmiðið að sú upphæð hækki í 32.5 milljónir króna.
Tónleikarnir voru fyrst haldnir í desember árið 1998. Hljóð- og ljósakerfi hefur verið lánað af EB Kerfi á hverju ári frá upphafi og
eins hefur Háskólabíó lánað aðstöðuna endurgjaldslaust frá upphafi. Að gefnu tilefni, er rétt að láta það fylgja, að á tónleikunum í
gegnum tíðina hefur komið fram rjómi þekktustu tónlistarmanna landsins á hverjum tíma og hafa allir þeir sem komið hafa að tónleikunum gefið
vinnu sína til fulls. Um leið hafa allir tæknimenn og aðrir starfsmenn tónleikanna gefið vinnu sína. Öll fyrirtæki, sem að
verkefninu hafa komið, hafa einnig gefið alla sína vinnu. Að sjálfsögðu er engin breyting þar á.
Árlega greinast að meðaltali 10 - 12 börn og unglingar 18 ára og yngri með krabbamein á Íslandi. Markmðið með stofnun Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna var m.a. að styðja við bakið á þeim og aðstandendum þeirra bæði fjárhagslega og félagslega. Í upphafi hafði félagið takmarkað bolmagn til framkvæmda en úr rættist með stórri landssöfnun 1993, þá var m.a. stofnaður neyðarsjóður sem meðlimir SKB geta sótt um fjárstyrk úr. Fimm manna nefnd metur umsóknir og úthlutar styrkjum en tengist SKB ekki að neinu öðru leyti.
Neyðarsjóðurinn er í raun tiltekin fjárupphæð sem stjórn SKB samþykkir fyrir hvert starfsár. Sérstök úthlutunarnefnd fer síðan með umboð til fjárveitinga úr styrktarsjóði SKB en skipulagsskrá fyrir hann er staðfest af dómsmálaráðuneytinu. Einnig ákveður stjórn SKB þak á hverja úthlutun. Hver félagsmaður í SKB má þó sækja um eins oft og
hann telur þörf á. Þess skal getið að skila þarf inn ítarlegum upplýsingum með hverri umsókn í neyðarsjóð svo úthlutunarnefnd fái tekið vel upplýstar og ígrundaðar ákvarðanir. Auk þessa aðstoðar þjónustufulltrúi SKB hjá viðskiptabanka félagsins úthlutunarnefnd við skoðun og mat á umsóknum.
Tónleikarnir fara fram í Háskólabíói laugardaginn 16. janúar hefjast stundvíslega klukkan 16.00 og meðal þeirra sem fram koma eru:
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
INGÓ OG VEÐURGUÐIRNIR
STÓRSVEITIN BUFF,
HVANNADALSBRÆÐUR,
HAFDÍS HULD
FRIÐRIK ÓMAR & JOGVAN
JÓHANNA GUÐRÚN
SKÍTAMÓRALL
DIKTA
ÍSLENSKA SVEITIN
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL
BOLLYWOODSHOW YESMINE
OG SÉRSTAKUR GESTUR: GEIR ÓLAFSSON