Mannlíf

Enn eru nokkur laus pláss í flugvirkjanám Keilis
Miðvikudagur 17. desember 2014 kl. 07:00

Enn eru nokkur laus pláss í flugvirkjanám Keilis

Vegna mikils áhuga mun Flugakademía Keilis bjóða nemendum upp á að hefja flugvirkjanám á vorönn, en hingað til hefur upphaf námsins verið á haustönn. Enn eru nokkur pláss laus í námið sem hefst í janúar 2015 og er áhugasömum bent á að hafa samband við Flugakademíu Keilis sem fyrst.

Fyrst var boðið upp á flugvirkjanámið haustið 2013 og bárust vel yfir hundrað umsóknir um þau 28 pláss sem voru í boði. Það er því ljóst að mikill áhugi er meðal Íslendinga að sækja flugvirkjanám, enda er mikill skortur á flugvirkjum í heiminum. Keilir og AST vilja benda á að nám og starf í flugvirkjun hentar jafnt konum sem körlum og því hvetjum við konur sérstaklega til að skoða þennan möguleika í framtíðinni.

Flugvirkjanám Keilis er í samstarfi við Air Service Training ltd. (AST) sem hefur sett upp útibú frá skóla sínum í Perth í Skotlandi hjá Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ. Í skólanum fer fram réttindanám flugvirkja og er um að ræða fimm anna samþykkt nám fyrir flugvirkja „Approved IR Part 66 Category B“ sem er bóklegt og verklegt iðnnám flugvirkja. Námið tekur mið af námsskrá sem gefin er út af EASA samkvæmt samevrópski útgáfu skírteina og sér AST um framkvæmd og ber faglega ábyrgð á gæðum námsins. Þeir sem ljúka flugvirkjanámi hjá AST öðlast öll þau réttindi sem EASA 145 viðhaldsfyrirtæki krefjast við ráðningu flugvirkja fyrir nútíma flugvélar.

 Áhugusömum er bent á að hafa samband við Flugakademíu Keilis á: [email protected]. Einnig má nálgast upplýsingar um námið á heimasíðunni: www.flugvirkjun.is.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024