HSS
HSS

Mannlíf

Endurfundir Varnarliðsstarfsmanna í Officera-klúbbnum
Fimmtudagur 22. október 2009 kl. 09:08

Endurfundir Varnarliðsstarfsmanna í Officera-klúbbnum

Fyrrverandi starfsmenn varnarliðsins, verktakar og aðrir sem unnu á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli!Ætla að hittast og rifja upp gamla góða tíma. Laugardaginn 31. október nk. verður partý í Officera klúbbnum frá kl. 20:30.


Partý-ið verður að amerískum stíl og maturinn með svipuðu móti og í Officera klúbbnum í gamla daga. Partý BBQ hlaðborð „All u can eat style“. Allt þetta fyrir 2500 krónur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Þá býðst gisting á frábæru verði fyrir þá sem þess óska. Verð kr. 6000 á mann. „Látum þetta einstaka tækifæri ekki framhjá okkur fara og sameinumst á ný í Officera klúbbnum. Makar að sjálfsögðu velkomnir“, segir í tilkynningu frá staðarhaldara í Officera-klúbbnum.


Miðasala hefst næstkomandi mánudag á skrifstofu Kanans, að Hafnargötu 89 í Keflavík. Miðasalan er opin kl. 10-17 og símin er 517 27 27.