HSS
HSS

Mannlíf

Endurbættur og jólalegur Norðurkotsskóli
Gestgjafar í Norðurkotsskóla, ásamt gestum. VF-myndir Olga Björt.
Þriðjudagur 30. desember 2014 kl. 09:26

Endurbættur og jólalegur Norðurkotsskóli

Rúmlega 100 ára gamalt hús á Vatnsleysuströnd fékk nýtt andlit.

Við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd stendur fallegt hús sem byggt var 1903. Húsið, sem ber nafnið Norðurkotsskóli, hýsti fyrr á tímum skóla fyrir nemendur sem bjuggu á svæðinu. Fyrir fimm árum stóð Norðurkotsskóli sunnar en var fluttur til og hefur hlotið mikla endurnýjun, bæði að utan og innan. Frá kirkjunni er gengið stuttan spöl niður brekku að Norðurkotsskóla. Þegar inn var komið mátti finna ilm af nýbökuðum pönnukökum og var búið að dekka upp borð og skreyta með jólaeplum eins og í gamla daga, kaffi og meðlæti. Á veggjum og í gluggakistum voru einnig jólaskreytingar sem minna á gamla tíma. Uppi á háalofti voru ýmsir fornir munir og sagði umsjónarfólk skólans að stefnan væri tekin á að hafa þarna minjasafn um hlutverk skólans. 

Blaðamaður Víkurfrétta leit við og tók nokkrar myndir. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Norðurkotsskóli að utan. 

Jólaepli og aðrar kræsingar voru á boðstólnum.
 
Litlar pönnukökur.
 
 
Gestir fengu sér kræsingar.
 
 

Gömul jólakort einum veggnum.

 
 
Jólaepli.
 
Gamalt rúm á háaloftinu.
 
 
Mikil vinna að baki við endurnýjun hússins.
 
 
Gamalt jólatré og dagblað frá 1979.
 
 
Ýmsir gamlir munir á háaloftinu.
 
 
Gamalt jólaskraut í gluggakistum.
 
 
Kálfatjarnarkirkja.