Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Endalok alheimsins í Grindavík
Miðvikudagur 5. október 2011 kl. 10:31

Endalok alheimsins í Grindavík

- Sprenghlægilegt heimsendaleikrit sýnt í Grindavík



Æfingar eru hafnar á nýju íslensku verki eftir Berg Þór Ingólfsson og Guðmund Brynjólfsson. Verkið verður frumsýnt 4. nóvember í Kvikunni í Grindavík. Endalok alheimsins (e. Museum af massive mistakes) er bráðfyndinn harmleikur um síðustu fjórar mannverurnar á jarðríki sem reyna að komast að því hvernig - og hvort - hægt sé að halda áfram eftir endalokin.

Einn leitar að mat í rústunum á meðan annar telur að skipulag sé eina leiðin til að lifa af. Síðasta konan þarf að gæta velsæmis á meðan karlarnir berjast um völdin. Hver á að elda síðustu ýsuna? Eru kartöflur nauðsynlegar með ýsunni eftir að heimurinn hefur farist? Er siðferðislega rangt að borða bækur? En að borða hvert annað? Enginn hefur svar á reiðum höndum því allir forðast öll umræðuefni sem upp koma eins og heitan eldinn. Þetta er nýtt íslenskt leikrit eftir höfunda Horna á höfði en er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. GRAL hefur áður sýnt verkin 21 manns saknað og Horn á höfði og hlotið tilnefningar til Grímuverðlauna fyrir bæði verkin og árið 2010 hlaut Horn á höfði Grímuna sem barnasýning ársins. Endalok alheimsins verður frumsýnt föstudaginn 4. nóvember í Kvikunni í Grindavík.

Endalok alheimsins er sett upp í með stuðningi frá Leiklistarráði, Listamannalaunum, Grindavíkurbæ og Menningarráði Suðurnesja.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024