Föstudagur 7. desember 2001 kl. 11:06
Elsta útgáfufyrirtæki landsins 25 ára

Elsta útgáfufyrirtæki landsins, Geimsteinn fagnar á þessu ári 25 ára starfsafmæli en Rúnar Júl. hefur rekið fyrirtækið frá því í apríl 1976. „Ég stofnaði fyrirtæki 2 árum áður sem hét Hljómar en við gerðum þetta því við fengum engan annan til að gefa okkur út“, segir Rúnar um ástæðu þess að fyrirtækið var stofnað hér áður fyrr. Fyrirtækið hefur gefið út 5-7 plötur á ári síðan það var stofnað og í ár er engin breyting þar á. Meðal þeirra sem eiga plötu í plötuflóðinu í ár eru Fálkar, Kalk, Gálan, Svenni Björgvins og auðvitað Rúnar sjálfur en hann á eflaust metið því hann hefur gefið út eina eða fleiri plötur á hverju ári síðan 1964 og ýmist með hljómsveitum eða einn. Um dreifingu á plötum Geimsteins sér Skífan. „Það er mjög fínt að vera með svona fyrirtæki í Keflavík“, segir Rúnar en hann hefur aðstoðað ungar of efnilegar hljómasveitir í bæjarfélaginu við að koma sér á framfæri auk þess sem hann hefur gefið út hljómsveitir úr Reykjavík, héðan og þaðan af landinu og allt suður til Kaliforníu. Í tilefni af afmælinu hefur verið gefinn út diskur með 50 lögum með hinum ýmsu hljómsveitum allt frá því útgáfufyrirtækið var stofnað, þar er m.a. að finna lög með Brimkló, Hljómum. Á fimmtudagskvöld voru síðan útgáfu- og afmælistónleikar á Ránni en þar komu fram auk Rúnars, Svenni Björgvins og co, Kalk og Bjartmar Guðlaugsson. Rúnar hefur alltaf haft nóg að gera við spil og söng og hefur spilað á hverri einustu helgi síðan 1963 og ef eitthvað er þá verður það meira með hverju árinu. Allar helgarnar í desember eru fullbókaðar með allt að tveimur tónleikum á dag. „Ég hef rosalega gaman af þessu ennþá og ætla mér að halda áfram eins lengi og ég get en ég er bókaður fram til ársins 2012“, segir Rúnar og hlær.