Bygg
Bygg

Mannlíf

Elíza á tónlistarhátíðum í Bretlandi í sumar
Fimmtudagur 7. júlí 2011 kl. 13:47

Elíza á tónlistarhátíðum í Bretlandi í sumar

Um þessa helgi mun keflvíska tónlistarkonan Elíza Newman koma fram á bresku tónlistarhátíðinni Lounge on the Farm sem haldin er árlega í Kent í Englandi. Aðrir þekktir tónlistarmenn sem koma fram um helgina verða m.a Ellie Goulding, The Streets, Echo and the Bunnyman, Katy B, The Vaccines, Graham Coxon, og íslandsvinirnir í The Joy Formidable. Elíza mun koma fram á föstudeginum.

Einnig mun Elíza koma fram á Tramlines Festival í Sheffield 23.júlí en er það ein stæðsta fría tónlistarhátið sem boðið er upp á Bretlandi. Þessi hátíð er svipuð í sniði og Airwaves hátíðinn á Íslandi þar sem tónleikar eru haldnir um alla borgina, fyrir utan að það er frítt inn á alla tónleikana og risa útitónleikum er hápunktur hátíðarinnar.Aðrir listamenn sem eru að koma fram þar eru meðal annars The Futureheads, Ash, Frankie & the Heartstrings og Johnny Clarke.

Önnur sólóplata Elízu kom út í Bretlandi í vor og hefur hlotið góðar viðtökur gagrýnenda meðal annars í the Mail on Sunday sem er annað mest lesna blað Bretlands.Gáfu þeir plötunni þrjár stjörnur og hrósaði lagasmíðum og útsetningum Elízu. Einnig hefur hún hlotið fjöldan allan af góðum dómum í blöðum eins og The Word, Bent Magazine, Amelia´s Magazine, Music Week og á vefsíðum eins og Subbacultcha , SoundXP og Entertainment Focus.

Í sumar mun Eliza byrja upptökur á sinni þriðju sóló breiðskífu sem mun væntanlega koma út snemma á árinu 2012.
Elíza stefnir einnig á að fara í tónleikaferð um Bretland í haust til að fylgja þessum góða viðbrögðum eftir enn frekar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn