Bygg
Bygg

Mannlíf

„Ekki ein stelpa í öllum skólanum sem leit við mér“
Mánudagur 7. júní 2010 kl. 15:29

„Ekki ein stelpa í öllum skólanum sem leit við mér“

Áður er Logi Geirsson varð heimsfrægur handboltakappi var hann ósköp venjulegur strákur sem hafði, ótrúlegt en satt, lítinn sem engan áhuga á handbolta. Faðir hans og bræður stunduðu handbolta af krafi og þá má segja að hann hafi hálfpartinn verið neyddur í íþróttina. Fyrsti þjálfari Loga var faðir hans, sá besti að hans mati og vakti áhuga hans á handbolta.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Að sögn Loga var hann alltaf mikill einfari þrátt fyrir að eiga marga vini og var ósköp venjulegur í skóla, með gleraugu og allan pakkann. Ekki fór mikið fyrir stelpustússi á þeim tíma. ,,Það kom sá tími að ég fann ekki eina stelpu í öllum skólanum sem var skotin í mér, þannig ég ákvað að bíða bara með það.”

Gaf sig allan í handboltann
Þegar Logi varð 18 ára gamall leikmaður FH ákvað hann að gefa sig allan í handboltann. Draumurinn var að verða atvinnumaður hjá þýska liðinu Lemgo. ,,Ég breytti í rauninni öllu, fór aldrei að semmta mér með víni og fór frekar út að hlaupa þegar allir voru að fara í partý.” Á sama tíma reyndi hann sérstaklega mikið á sig í námi í framhaldsskóla til þess að geta stundað námið utanskóla síðasta árið. Þá gat hann æft meira og unnið sér inn pening. ,,Samt verð ég að segja að leiðin sem ég fór er ekki sú eina rétta, það eru margir sem voru alltaf í partýunum og hafa farið sömu leið og ég, þannig ég segji bara: Go your own way.“

Barn á leiðinni
Það hefur mikið gerst í lífi Loga þrátt fyrir ungan aldur. Hann er atvinnumaður í handbolta og er í íslenska landsliðinu. Núna er Logi að fara að taka á sig nýtt verkefni sem er að vera pabbi. Sér hann fram á að lífið eigi eftir að breytast mikið? ,,Já og nei. Þetta var ósk okkar beggja og ég er farinn að hlakka svakalega til að takast á við föðurhlutverkið. Ég held að líf okkar muni breytast til hins betra.“ Logi Geirson er í sambúð með barnsmóður sinni, Ingibjörgu Elvu Vilbergsdóttir, sem er úr Garðinum. Hvernig kynntust stelpa úr rólegu bæjarfélagi aðalmanninum í handboltanum? ,,Við kynntum fyrst í gegnum FACEBOOK og ég elska þessa síðu fyrir að hafa fært mér kærustuna mína. Ég stend á þeirri skoðun að ég sé í sambandi með bestu manneskju í heiminum.”

Kominn heim
Hver er staðan í handboltanum hjá Loga Geirssyni núna? Það er brjálað að gera hjá kappanum við að framleiða gel, skrifa sína eigin bók og eiga núna von á barni. ,,Ég lenti í þeirri leiðinlegu lífsreynslu að meiðast illa á öxlinni fyrir einu ári en ég læt þessi meiðsli ekkert stoppa mig. Ég er að ná fullri heilsu aftur, menn hafa jú komið til baka eftir krabbamein! Þannig að ég ætla ekkert að vorkenna mér.” Nýlega skrifaði Logi undir samning við sitt gamla félag FH. Hann er því kominn heim eftir nokkurra ára dvöl erlendis.

Á bekknum á EM
Logi er vanur að vera aðalmaðurinn í landsliðinu en á EM þurfti hann að sitja á bekknum næstum allan tímann vegna meiðslanna á öxlinni. Hvernig tilfinning var það? ,, Þetta var frekar erfitt ef ég á að segja alveg satt, ég held að fólk eigi erfitt með að ímynda sér hvað fari í gegnum hausinn á manni meðan maður situr á bekknum og horfir á hina spila.” Logi fékk sjálfur að taka þessa ákvörðun og er sáttur við hana, eins og Ólafur Stefánsson orðaði það ,,Logi er Ódysseifurinn í liðinu.”

Bók væntanleg
Eins og fram kom hér að ofan þá er Logi að fara að skrifa bók. ,,Þetta mun verða besta bók sem þú hefur lesið! Það sem gerir þessa bók öðruvísi er að það hefur aldrei verið skrifuð nákvæmlega svona bók. Allir sem kunna að lesa ættu að verða sér úti um hana.”

Væri til í að búa í Reykjanesbæ
Einhverntíma tekur handboltaferillinn enda. Að honum loknum telur Logi að eitthvað allt annað taki við. ,,Bæði ég og konan mín erum ævintýragjörn og það er aldrei að vita uppá hverju maður tekur. Aðalatriðið er að vera hamingjusamur og sáttur við það sem maður gerir hverju sinni.”
Er þá kannski á plani Loga að flytja til Reykjanesbæjar? ,,Ég væri alveg til í það. Ég hef kynnst mikið af skemmtilegu fólki þarna á síðastliðnu ári og já, hver veit. Þarna er allt til alls.”


Thelma Hrund Tryggvadóttir