Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Ekki allir jafn heppnir að enda á tveimur strikum
Fríða Dís með eitt af listaverkunum í Sandgerði. VF-mynd: Sólborg
Fimmtudagur 31. ágúst 2017 kl. 05:00

Ekki allir jafn heppnir að enda á tveimur strikum

-Listasýning Fríðu Dísar verður í Stofunni í Duus Safnahúsum á Ljósanótt

„Hvert verk er stækkaður rammi af óléttuprófi og stendur fyrir einn mánuð í því 57 mánaða ferli sem það tók mig og manninn minn að verða ófrísk,“ segir söngkonan Fríða Dís Guðmundsdóttir, en hún verður með myndlistarsýningu í Stofunni í Duus Safnahúsum á Ljósanótt sem ber heitið Próf/Tests.


Mynd: Þorsteinn Surmeli

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Ég vissi ekki hvort ég myndi einhvern tímann fá að loka þessari sýningu með tveimur strikum. Myndirnar áttu aldrei að verða svona margar, en hugmyndin að sýningunni kom þegar við vorum búin að reyna að verða ófrísk í ár,“ segir Fríða Dís en henni finnst mikilvægt að opna umræðuna um þessi mál. „Þegar maður lítur til baka hefði verið auðveldara að geta talað um þetta. Þetta er svo tabú. Ég lærði snemma að láta það ekki fara í taugarnar á mér þegar fólk spurði okkur hjónin hvort við ætluðum ekki að fara að eignast barn. Þá var maður kannski í miðri meðferð, við fórum sex sinnum í glasafrjóvgun. En fólk er bara forvitið og ekkert að reyna að vera leiðinlegt, en það er gott að opna umræðuna um þetta,“ segir hún.

Aðspurð hvernig maður fari að því að halda í vonina eftir að hafa fengið 56 neikvæð óléttupróf segir Fríða þau ekkert alltaf hafa verið bjartsýn. „Ég veit ekki hvaðan öll þessi von kom. Þegar við vorum búin að reyna í ár kom í ljós að ég var með endómetríósu, sem er legslímuflakk. Það var svolítill skellur því þá var þetta orðið eitthvað vandamál. Glasafrjóvgun hefur reynst konum með endómetríósu vel, en það að fara fimm sinnum í meðferð og fá neikvætt tekur tíma að jafna sig á. Maður er líka í þessu harki bara sjálfur, af því það talar enginn um þetta.“


Mynd: Þorsteinn Surmeli

Dagur Þorsteinsson Surmeli kom svo í heiminn fyrir þremur mánuðum síðan og dafnar vel. „Það eru ekkert allir jafn heppnir og ég að fá að enda á tveimur strikum. Ég áttaði mig ekki á því hvað þessi sýning yrði mikil losun. Þegar ég kláraði að mála síðustu myndina brotnaði ég bara niður og fór að hágráta. Þetta var gleði og sorg í sama pakkanum.“

Fríða segir sýninguna snúast um þá sem geta tengt við sögu þeirra hjóna, en sýningin mun opna á morgun, fimmtudag, í Duus Safnahúsum.

[email protected]