Eitt töfrateppi, takk!
-Töfrandi og frábær sýning í Frumleikhúsinu
Föstudaginn 1. apríl frumsýndi Leikfélag Keflavíkur í samstarfi við Vox Arena, Leikfélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja söngleikinn „Eitt töfrateppi, takk!“. Höfundar og leikstjórar verksins eru þeir Jón Bjarni Ísaksson og Arnór Sindri Sölvason sem hafa verið viðloðandi leiklist til margra ára.
Þarna er á ferðinni eitt skemmtilegasta verk sem sett hefur verið á svið hér í bæjarfélaginu og glumdi hlátur leikhúsgesta frá upphafi sýningar til enda. Verkið sem styðst við söguna af Alla og töfralampanum hans er frábærlega skrifað verk fyrir alla fjölskylduna. Höfundarnir skjóta inn ótrúlega skemmtilegum, nútíma „fullorðins“ bröndurum sem fólk hreinlega tók bakföll af hlátri yfir. Umgjörð verksins er snilldarlega upp sett en leikmyndin er hönnuð af Davíð Erni Óskarssyni sem einnig sá um smíði hennar ásamt Gunnari Valdimarssyni, kennara í FS og hans nemendum.
Hlutverkin í þessari uppsetningu eru ótrúlega vel valin og hver leikari að smellpassa í sitt hlutverk. Leikarar koma allir úr röðum FS og skila sínu vel. Söngvarar eru að skila sínum söng óaðfinnanlega og nefni ég þá sérstaklega þær Brynju Ýri og Ásdísi Rán sem eiga hrós skilið fyrir sína frammistöðu. Götudrengurinn Aladdín er leikinn af Jóhönnu Jeanne og skilar hún hlutverki sínu með miklum ágætum og syngur vel. Jasmín prinsessa er leikin af Rítu Kristínu sem kemst mjög vel frá sínu. Sóldáninn föður Jasmínar leikur Magnþór Breki frábærlega og gerir mikið úr hlutverkinu. Að öðrum leikurum ólöstuðum verð ég einnig að nefna þá Guðstein Fannar sem leikur sögumanninn og Guðlaug Ómar sem leikur Jafar. Báðir leika þeir og syngja sín hlutverk af mikilli sannfæringu og krafti. Stjarna og senuþjófur sýningarinnar er þó án efa Sigurður Smári í gerfi Andans en hann marg stal senunni með hnyttnum línum og svipbrigðum og tókst að gera hlutverk sitt ákaflega sjarmerandi og skemmtilegt. Töfrateppið fylgdi Andanum alla sýninguna og var einstaklega vel hannað og leikið af Lovísu Ýri.
Eins og áður sagði er sýningin í alla staði ákaflega lifandi, litrík og skemmtileg og þar skemmir ekki að búningarnir eru einstaklega vel gerðir og vandaðir. Dansarar og danshöfundar eiga einnig hrós skilið fyrir þeirra vinnu en dansinn setur skemmtilegan svip á heildarmyndina. Það er full ástæða til að óska öllum þeim sem að þessari sýningu koma til hamningju með frábært verk og um leið hvetja alla áhugasama leikhúsunnendur til þess að skella sér á „Eitt töfrareppi, takk“. Ég átti stórskemmtilegt kvöld ásamt minni fjölskyldu og vorum við öll sammála um að hér væri á ferðinni tímamótaverk sem enginn má láta fram hjá sér fara. Takk fyrir mig og mína.
Ánægður leikhúsgestur