Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Eitt fallegasta og vinsælsta kórverk sögunnar í Duus Safnahúsum
Stór hluti hópsins á æfingu í Hljómahöllinni undir stjórn Jóhanns Smára. Hluti tónanna verður í Suðurnesjamagasíni vikunnar. VF-mynd/pket
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 2. apríl 2022 kl. 06:55

Eitt fallegasta og vinsælsta kórverk sögunnar í Duus Safnahúsum

Sálumessa Mozarts flutt á tvennum tónleikum 8. og 9. apríl

„Þetta er eitt fallegasta kórverk sem skrifað hefur verið og eitt það vinsælasta, sálumessa Mozarts. Hann var að skrifa þetta þegar hann lést og klárað af öðru tónskáldi. Þetta er flutt reglulega um allan heim og nú ætlum við að flytja þetta á tvennum tónleikum í Duus Safnahúsum í Reykjanesbæ og verðum með frábæra söngvara og kór,“ segir Jóhann Smári Sævarsson hjá Óperufélaginu Norðurópi sem í samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar er að ráðast í það stórvirki að flytja Requiem (Sálumessu) eftir Wolfgang Amadeus Mozart. 

Sálumessan er um það bil 50 mínútna langt tónverk fyrir fjóra einsöngvara, kór og sinfóníuhljómsveit og er ein allra þekktasta sálumessa tónbókmenntanna. Verkið er flutt árlega um allan heim, en afar sjaldan hér á landi.
Að sögn Jóhanns Smár verður verður verkið í þessari tónleikauppfærslu flutt af 25 manna sinfóníuhljómsveit, tæplega 50 manna kór einsöngsmenntaðra söngvara, langt kominna söngnemenda og þjálfaðra áhugasöngvara, sem skipta svo með sér einsöngsatriðum. Hljómburðurinn í Bátasal Listasafns Reykjanesbæjar hentar Sálumessunni mjög vel og lýsing verður viðeigandi og glæsileg. Stjórnandi er Jóhann Smári Sævarsson, konsertmeistari Una Sveinbjarnardóttir og ljósameistari Magnús Helgi Kristjánsson.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Norðuróp stofnaði fyrir nokkrum árum nokkurs konar óperustúdíó í Reykjanesbæ í samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Hljómahöll, með uppfærslu á óperunni „Brúðkaup Fígarós“ eftir W.A. Mozart. Verkefnið var opið öllum söngvurum og söngnemendum Tónlistarskólans sem og efnilegum söngvurum hér á Suðurnesjum og annars staðar að af landinu. Við höfum reynsluna og þekkinguna á svæðinu til að leiða slík spennandi verkefni, sem gefa ungum listamönnum frábær tækifæri til að auka þekkingu sína og reynslu á óperusviðinu um leið og við aukum við menningarflóruna á svæðinu.

„Eftir mjög vel heppnaða og fjölsótta uppfærslu Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á söngleiknum „Fiðlarinn á þakinu“ eftir J. Bock sem sýndur var í Stapa, haustið 2019 í tilefni af 20 ára afmælum beggja, og þann mikla áhuga þeirra sem tóku þátt og annarra söngvara og hljóðfæraleikara af svæðinu, þá höfum við ákveðið að nota meðbyrinn og halda þessu jákvæða samstarfi Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar áfram og ráðast í flutning þessa magnaða verks, Sálumessu eftir W.A. Mozart, sem við efumst ekki um að muni falla í góðan jarðveg hjá Suðurnesjamönnum,“ segir Jóhann Smári.