Eiríkur Árni er listamaður mánaðarins
				
				Ný mynd mánaðarins verður afhjúpuð í Kjarna, Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ, laugardaginn 7. apríl kl. 13.30.  Listamaður aprílmánaðar er Eiríkur Árni Sigtryggson.  
Eiríkur er fæddur 14. sept. 1943 í Keflavík og hefur stundað list sína frá unga aldri. Hann hefur sótt námskeið víða um heim og aðal leiðbeinendur hans hér á landi voru Hringur Jóhannesson og Valtýr Pétursson. Myndir eftir Eirík má m.a. sjá á Listasafni Reykjanesbæjar, Hitaveitu Suðurnesja, og Grindavíkurbæ. Eiríkur hefur haldið 9 einkasýningar, síðast í Árskógum í september 2000. Hann hefur einnig tekið þátt í mörgum samsýningum, m.a. sýningu Félags íslenskra myndlistarmanna á Kjarvalsstöðum.
Eiríkur er ekki aðeins þekktur sem myndlistarmaður heldur ekki síður sem tónskáld. Við opnunina á laugardaginn frumflytur málmblásarasextett tónverk eftir Eirík sem ber heitið Keilir. Verkið lýsir undirbúningi og gönguferð á fjallið Keili. Heyra má í göngufólkinu og leiðsögumönnunum. Í lokin glymja húrrahrópin þegar tindinum er náð.
Allir gestir eru boðnir velkomnir.