Einstakir jólatónleikar til styrktar fjölskyldum á Suðurnesjum
Fimmtudaginn 18. desember ætlar einvalalið tónlistarmanna tengdir Suðurnesjunum að koma fram á jólatónleikum til styrktar Velferðarsjóði Suðurnesja. Á tónleikunum munu koma fram Elíza Geirsdóttir Newman, Jóhann Helgason, Karlakór Keflavíkur, Klassart, Kvennakór Suðurnesja, Magnús, Kjartan Már og Finnbogi Kjartanssynir, Sigurður Guðmundsson, Védís Hervör og Þóranna Kristín. Allir aðstandendur, og þeir sem fram koma, gefa vinnu sína og rennur andvirði aðgöngumiða óskert til Velferðarsjóðs Suðurnesja.
Fráfall Rúnars Júlíussonar hefur haft mikil áhrif á Suðurnesjamenn og hefur jafnframt áhrif á tónleikana, en Rúnni ætlaði að koma fram á tónleikunum ásamt fjölskyldu sinni og var það auðsótt mál að fá hann til að taka þátt. Tónleikarnir verða því haldnir í minningu hans enda hafa flestir ef ekki allir tónlistarmennirnir sem fram koma kynnst Rúnna og margir hverjir unnið með honum í gegnum tíðina.
Skipuleggjandi tónleikanna, Þóranna K. Jónsdóttir, segir að viðtökur við hugmyndinni hafi verið frábærar og allir boðnir og búnir til að leggja sitt af mörkum. Auk tónlistarmannanna hafi fyrirtæki tekið vel í að styrkja verkefnið með framlögum í ýmsu formi. Þannig leggur Bláa Lónið til salinn, Sparisjóðurinn styrkir verkefnið og sér auk þess um miðasölu á tónleikana, Grágás gefur prentun og keflvískir hönnuðir sjá um auglýsingagerðina auk þess sem Víkurfréttir gefa auglýsingabirtingar. Allt þetta gerir það mögulegt að láta ágóðann renna óskertan til málefnisins.
Þóranna leggur áherslu á að tilgangur tónleikanna sé ekki eingöngu að styrkja fjölskyldur með framlagi í sjóðinn heldur einnig að gefa Suðurnesjamönnum tækifæri til að koma saman á aðventunni. Tónleikarnir séu tilvalin leið til að taka hlé frá jólastressinu og efnahagsástandinu og í ljósi nýliðinna atburða, að minnast Rúnna Júl. Þóranna hvetur alla til að sýna samhug í verki, njóta fallegrar jólatónlistar með sínu heimafólki og stuðla um leið að því allir geti átt gleðileg jól á Suðurnesjum.
Tónleikarnir eru fimmtudaginn 18. desember og hefjast kl. 20:00 í Lava sal Bláa Lónsins. Miðaverð er kr. 2.500,- og forsala aðgöngumiða fer fram í útibúum Sparisjóðsins um öll Suðurnes. Ef einhverjir hafa áhuga á að aðstoða í kringum tónleikana er þeim bent á að hafa samband við Þórönnu í síma 690 4412. Fjárframlög til Velferðarsjóðs Suðurnesja má leggja inn á reikning: 1109–05–1151 og kt. 680169-5789.