Bygg
Bygg

Mannlíf

„Eins og að vera með þrjú bingóspjöld“
Arnar og Sævar Ingi.
Fimmtudagur 2. apríl 2015 kl. 12:00

„Eins og að vera með þrjú bingóspjöld“

Ungir Suðurnesjamenn sópuðu til sín verðlaunum á Músíktilraunum.

„Takið þið eftir því að þetta er meira og minna sama fólkið sem er að taka á móti verðlaununum hérna?“ sagði Ólafur Páll Gunnarsson á úrslitakvöldi Músiktilrauna sem haldið var um helgina. Keppninni var útvarpað beint á Rás 2 og reyndust þrjár hljómsveitir tengdar Suðurnesjum, SíGull, AvÓka og Par Ðar afar sigursælar. Reykjanesbæingarnir Sævar Helgi Jóhannsson, sem er bæði í SíGull og Par Ðar og Arnar Ingólfsson, sem er í Sígull, Par Ðar og AvÓkA, ræddu við Víkurfréttir um árangurinn. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Par Ðar skipa: Arnar Ingólfsson, bassi, Kristjón Freyr Hjaltested, gítar, Viktor Atli  Gunnarsson, gítar, Eyþór Eyjólfsson, trommur, Sævar Helgi Jóhannsson synth/harmonium.

Fengu nánast öll verðlaunin

„Við erum ennþá í sæluvímu. Það er mjög einstakt að sömu manneskjurnar séu í tveimur eða þremur hljómsveitum í þessari keppni og vinni svona mörg verðlaun,“ segja félagarnir. Par Ðar hreppti 2. sætið og AvÓkA það þriðja, auk þess sem Arnar var valinn besti bassaleikarinn og Eyþór Eyjólfsson besti trommuleikarinn. „Eyþór hljóp í skarðið fyrir bróður minn því hann var kominn yfir aldurstakmarkið, orðinn 27 ára. Eyþór er vanur að vera í „frontinum“ með hristur og það kom honum því skemmtilega á óvart að fá þessi verðlaun. Hann ætlar að fá sér bongótrommur fyrir verðlaunaféð,“ segir Arnar og hlær. Þá fékk Par Ðar verðlaun fyrir íslenskan texta og SíGull var valin hljómsveit fólksins, sem valin var af salnum og með símakosningu. „Það voru skemmtileg verðlaun. Það voru svo margar flottar og jafnar hljómsveitir með sína hverja tónlistarstefnuna og við gerðum okkur engar sérstakar vonir. Við sögðum við sjálfa okkur allt kvöldið: Við vitum ekkert hvað er að gerast! Við vorum mjög sáttir sáttir með 2. og 3. sætið því við fengum nánast allt hitt,“ segir Sævar Helgi.  

AvÓkA skipa: Birna María, styff söngur/synth, Kristjón Freyr Hjaltested, harmonium, Eyþór Eyjólfsson, trommur, Arnar Ingólfsson, bassi, Viktor Atli Gunnarson, gítar, Margrét Vala Kjartansdóttir, trompet.

Glæsilegir vinningar

Aðspurðir sögðust þeir að eðlilega hafi menn verið mjög stressaðir fyrir keppnina því æft var og keppt með þremur hljómsveitum. „Það þarf bara sjálfstraust, trú á því sem maður er að gera og bara hafa gaman af þessu. Svo er þetta líka bara eins og að vera með þrjú bingóspjöld. Þá eru meiri möguleikar á verðlaunum,“ segir Arnar brosandi, en um var að ræða upptökutíma í hljóðveri, þátttaka á Iceland Airwaves, upptökutæki og 30 þúsund króna inneignir í Tónastöðinni, spilun í Popplandi og stafli af bókaverðlaunum. 

SíGull skipa: Sævar Helgi Jóhannsson, hljómborð/söngur, Sveinbjörn Ólafsson, gítar/bakraddir, Arnar Ingólfsson, bassi/bakraddir, Eyþór Eyjólfsson, trommur, Ragnhildur Veigarsdóttir, söngur, Jón Böðvarsson tenór/saxófónn.

Nýta öll tækifæri sem berast

Arnar og Sævar Helgi stunda báðir nám í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og segja það mikilvægan grunn að svona árangri. Svo hafi tækifærið komið. „Þetta byrjaði allt sem stúdíóvinna hjá Kristjóni Frey Hjaltested, gítar- og harmoniumleikara. Hann var búinn að taka upp formið af flestum lögunum og hafði samið þau flest sjálfur. Svo fékk hann bassa-input frá mér og ég fór að hanga með honum eftir að hann kom úr upptökuskóla í Los Angeles og kynnti hann svo fyrir Sævari og Eyþóri. Hann var eiginlega búinn að missa trú á því að byrja í hljómsveit,“ segir Arnar og bætir við að framtíðarplön séu að klára lögin sem þeir hafa unnið að síðastliðin tvö ár. „Við erum líka að vinna að nýju lagi og einbeita okkur að nýju efni. Það eru pælingar með að gera litla plötu með gamla efninu eða stóra með blönduðu efni. Við erum allavega ákveðnir í að vekja athygli á okkur og nýta öll tækifæri sem berast,“ segja félagarnir á lokum. 

Arnar og Eyþór taka á móti verðlaunum: 

Hér eru Facebook síður hljómsveitanna: 

Par Ðar    SíGull     AvÓkA